Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Strikið 4

210 Garðabær

99.900.000 kr.

1.060.510 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2273608

Fasteignamat

86.150.000 kr.

Brunabótamat

59.930.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
94,2 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Heldri borgarar

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega fallega útsýnisíbúð á efstu hæð með aukinni lofthæð og frábæru útsýni til sjávar og fjalla við Strikið 4 í Garðabæ. Eignin er skráð 94,2 fm og skiptist í svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi með sturtu, sér þvottahús innan eignar, geymslu innan eignar auk geymslu í kjallara. Einnig fylgir eigninni bílastæði í kjallara þar sem búið er að leggja rafmagn fyrir bílahleðslustöð. Húsið er aðeins fyrir íbúa 60 ára og eldri. Innangengt í þjónustumiðstöð aldraðra í Garðabæ sem staðsett er í Jónshúsi en þar fer margvíslegt félags- og tómstundastarf fram. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson,  fasteignasali, í GSM 898-6106 eða  sigurdur@fstorg.is   

Nánari lýsing: Komið er inn í anddyri með rúmgóðum fataskápum sem ná upp í loft. Frá anddyri er gengið inn í rúmgóða stofu/borðstofu með aukinni lofthæð og virkilega fallegu útsýni til sjávar og fjalla. Frá stofu er gengið út á 7,7 fm yfirbyggðar svalir til norð-vesturs með fallegu útsýni. Eldhúsið er einnig með aukinni lofthæð, fallegum innréttingu, hellurborði, veggháf, bakaraofni og ísskáp sem fylgir. Inn af eldhúsi er þvottahús með hvítum innréttingum og vask. Baðherbergið er flísalagt, með sturtu og upphengdu salerni. Falleg innrétting er inn á baðherbergi. Lítil geymsla er inn í íbúðinni en auk hennar er 4 fm geymsla í kjallara hússins. Sér bílastæði fylgir eigninni (merkt 22) en búið er að leggja rafmagn fyrir bílahleðslustöð samningur er við ON um uppsetningu og leigu á hleðslubúnaði. Í bílakjallaranum er bílaþvottaaðstaða fyrir íbúa hússins.  
Um húsið: Frá anddyri hússins er innangengt í Jónshús sem er félags- og þjónustumiðstöð og hefur félag eldri borgara aðsetur í húsinu. Ýmis þjónusta er til staðar, t.d. aðgengi að heitum mat og kaffi, snyrtistofa, hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa. Einnig er innisundlaug hinum megin við götuna. Góðar gönguleiðir eru í kringum húsið og nærliggjandi umhverfi. Gangstéttin fyrir framan húsið er upphituð. Íbúðir í húsinu eru ætlaðar eldri borgurum sbr. 8. gr. lóðarleigusamnings.
 Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson,  fasteignasali, í GSM 898-6106 eða  sigurdur@fstorg.is   
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

img
Sigurður Gunnlaugsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Sigurður Gunnlaugsson

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. sep. 2022
58.100.000 kr.
85.900.000 kr.
94.2 m²
911.890 kr.
13. ágú. 2015
30.750.000 kr.
39.900.000 kr.
94.2 m²
423.567 kr.
1. okt. 2010
26.200.000 kr.
28.000.000 kr.
94.6 m²
295.983 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Sigurður Gunnlaugsson

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ