Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1988
svg
198 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölum Fannafold 205, 112 Reykjavík:

Um er að ræða einstaklega fallegt og vel staðsett einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr. Birt stærð eignar er 198 fm og þar af er 40 fm. bílskúr. Að auki er búið að byggja ca. 24 fm sólstofu og ca. 5 fm gróðurhús. Heildarstærð er því samtals 227 fm. Umhverfis húsið er fallegur og gróinn garður með suður sólpall. Húsið er einstaklega vel staðsett í Foldahverfinu og sunnan við húsið er stórt grænt svæði. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð og sundlaug.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu / borðstofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús og tvöfaldan bílskúr. 

* Einstaklega vel staðsett eign.
* Bílastæði fyrir allt að fimm bíla. 
* Heildarstærð með sólstofu og  gróðurhúsi er 227 fm. 


Lýsing eignar:
Anddyri: Með góðum forstofuskáp og skóskáp, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Stór og björt, upptekin loft klædd með fallegri brasilískri furu, útgengi út í 24 fm sólstofu og þaðan er útgengi út á suður sólpall, parket á gólfi. 
Eldhús: Rúmgott, góð innrétting, ísskápur og uppþvottavél sem geta fylgt með, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Stórt hjónaherbergi með hvítum fataskápum, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 2: Gott parketlagt herbergi með hvítum fataskáp.
Svefnherbergi 3: Rúmgott parketlagt herbergi með hvítum fataskáp.
Svefnherbergi 4: Rúmgott parketlagt herbergi.
Baðherbergi: Með góðri innréttingu og skáp, baðker og sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf. 
Gestasnyrting: Með góðri innréttingu, upphengt salerni, flísar á gólfi. 
Þvottahús: Úr eldhúsin er gengið inn flísalagt þvottahús með innréttingu, vinnuborði, vask og skápum. Útgengt úr þvottahúsinu út á lóð.
Bílskúr: Tvöfaldur 40 fm. bílskúr, geymsluloft yfir hluta og aukin lofthæð, bílskúrshurðaopnarar, heitt og kalt vatn, hiti, gluggar á austur hlið, málað gólf.  
Sólstofa: Nýleg ca. 24 fm sólstofa, rafmagnstenglar og ljós, parket á gólfi. 
Gróðurhús: Nýlegt ca. 5 fm gróðurhús við suðurvegg, hellulagt.

Húsið: Húsið er steinsteypt og byggt árið 1988. 
Lóð: Húsið er staðsett á einstaklega góðum stað í botnlanga í Fannafold. Falleg og gróin 710 fm lóð. Framan við húsið er stórt hellulagt bílaplan með snjóbræðslu fyrir allt að fimm bíla og verönd. Hellulagður rampur er upp að húsinu fyrir barnavagna eða hjólastóla. Á baklóð er suður sólpallur og framan við lóðina er stórt grænt svæði og langt í næstu hús  til suðurs. Lítið garðhús er á lóðinni. Upphækkaður vermireitur fyrir matjurtir og blóm. 
Staðsetning: Smellið hér. 

Að sögn eigenda er búið að endurnýja eftirfarandi: 
* 2025 Ný sólstofa.
* 2025 Nýtt gróðurhús.
* Gler hefur verið endurnýjað að mestu leiti. 

Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign í fjölskylduvænu umhverfi þar sem stutt er í strætó, leikskóla, grunnskóla, sundlaug, íþróttahús og ýmsar tómstundir t.a.m. í afþreyingu í Egilshöll, golf á Korpúlfsstaðarvelli eða Grafarholtsvelli. Grafarvogur er gróið og eftirsótt hverfi með fjölskylduvænu umhverfi, stuttri leið í leik- og grunnskóla, íþróttamannvirki, sundlaug og verslun. Göngu- og hjólastígar liggja meðfram sjónum og um hverfið allt. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Hólmar Björn Sigþórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. sep. 2018
66.400.000 kr.
84.900.000 kr.
198 m²
428.788 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík