Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1978
svg
196,2 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 7. júlí 2026 kl. 18:00 til 18:30

Opið hús: Barrholt 31, 270 Mosfellsbær. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 7. júlí 2026 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir fallegt hús á hornlóð að Barrholti 31, 270 Mosfellsbær,  eignin skiptist í stofu/borðstofu, eldhús, þvottahús, 4-5 svefnherbergi, tvö baðherbergi, tvöfaldan bílskúr, einnig er stór og fallegur garður.  Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR,  íbúð 140 fm og bílskúr 56,2 fm alls birt stærð 196.2 fm. Fasteignamat fyrir 2027 er 133.050.000kr

Nánari lýsing á eigninni

Anddyri er með fatahengi og flísar á gólfi, hægt er að ganga inn í þvottahús og þar inn í eldhúss
Eldhús er bjart, með fallegri, upprunalegri viðarinnréttingu með hvítri borðplötu, flísar á gólfi, útsýni er á Esjuna
Þvottahús er bæði innangengt úr eldhúsi og úr anddyri. Hillur og gott vinnupláss, flísar á gólfi
Stofa/borðstofa er rúmgóð, arinn fyrir miðju, parket er á gólfi. Útgengt er út í garðinn á hellulagða stétt
Hjónaherbergi er innst á svefnherbergisganginum, með rúmgóðan fataskáp með speglum, parket á gólfi, útgengt er út í garð frá herbergi 
Svefnherbergi 1 er lítið með parket á gólfi 
Svefherbergi 2 er lítið með fataskáp og parket á gólfi
Svefnherbergi 3 er stórt forstofuherberbergi, var áður tvö svefnherbergi en veggur var fjarlægður og gert að einu, parket á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með fallegri viðarinnréttingu, með tveimur vöskum, speglaskápar að ofan með ljósum.  Baðkar og sér sturta, stúkuð af með góðum haus. Upphengt salerni. Baðherbergið var tekið alveg í gegn af fagmönnum árið 2007
Gestasalerni er við anddyri með vaski og flísum á gólfi
Bílskúr er tvöfaldur og rúmgóður, innaf honum er búið að stúka af rými. Leki er í bílskúrsþakinu. Næg bílastæði.
Húsið hefur fengið ágætisviðhald og þá sérstaklega að utan, múrinn og þakið.


Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Jón Bergdal Löggiltur fasteignasali, í síma 7670777, tölvupóstur alli@trausti.is og Elísabet Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 8224848, tölvupóstur elisabet@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Aðalsteinn Jón Bergdal
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Aðalsteinn Jón Bergdal

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Aðalsteinn Jón Bergdal

Vegmúla 4, 108 Reykjavík