Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr.
Ásmundur Skeggjason
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Kristinn Tómasson viðsk.fr. MBA
Þórarinn Friðriksson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1990
svg
224,1 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Vel skipulagt og fjölskylduvænt 240,1 fm. parhús á 2. hæðum, þar af er 26 fm. innbyggður bílskúr. Húsið er vel staðsett við Leiðhamra 37, 112 Grafarvogi. Lóðin er með upphitað bílaplan og verönd í suður.

Skipulag telur: Þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi (og með möguleika á fjórða herberginu) Tvær stofur, eldhús, sér þvottahús, og  tvö baðherbergi. Í bílskúrnum er gott óskráð geymsluloft.

Bókið skoðun hjá Ásmundi  í síma 895-3000 eða með tölvupósti á netfangið asi@hofdi.is 

Nánari upplýsingar: 
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp, gólfhiti. Inn af forstofu er sér þvottahús með flísum á gólfi og opnanlegum glugga, innangengt í eldhús. Innangengt er einnig í mjög rúmgóðan bílskúr úr forstofu. Heitt og kalt vatn. Frá forstofu er komið inn í alrými með parketi á gólfi sem tengir saman stofu, sólstofu, eldhús og borðstofu. Á neðri hæð er fallegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, handlaug og salerni og sturtu. Stofan er rúmgóð og björt með gluggum sem vísa út að verönd hússins í suður. Frá sólstofu er hægt að ganga út um franska svaladyr út á verönd hússins. Sólstofa er flísalögð, gólfhiti. Frá stofu er gengið inn í sér borðstofu með parket á gólfi (hægt væri að útbúa það rými sem fjórða svefnherbergi hússins). Eldhús með parketi á gólfi og gluggum á tvo vegu. Í eldhúsinu er borðkrókur og falleg  eldhúsinnrétting með gott vinnu- og skápapláss, granítborðplata.  Frá holi er góður stigi á efri hæð. Þegar upp á efri hæð er komið, er miðrými með hátt til lofts og aðgengi inn í öll þrjú svefnherbergin og baðherbergi hússsins. Miðrýmið er mjög rúmgott og nýtist líka vel sem sjónvarpsherbergi/fjölskyldurými með stórum glugga sem gefur gott útsýni yfir borgina og útgangi á svalir. Hæðin er að hluta til undir súð, hátt er til lofts þar sem hæst er. Innangengt úr miðrými er í hjónaherbergið, mjög rúmgott og bjart herbergi með  fataskápum og parket á gólfi. Þar við hlið er svo tvö mjög rúmgóð barnaherbergi með parketi á gólfi, fataskápar í báðum. Nýlega endurnýjað baðherbergi með flísum á gólfi og á veggjum. Upphengt salerni, handlaug, rúmgóð sturta  ásam handklæðaofni, hornbaðkar, gólfhiti.
 Verönd sem snýr í suður er með gott útsýni, lóðin er öll mjög snyrtileg. Bílaplan og gangstétt að innkomu inn í húsið er hellulagt með hitalögn undir. 

Útivistarsvæði er við enda götunnar ásamt mjög fallegum og skemmtilegum göngu- og hjólreiðar leiðum meðfram voginum og sjónum með fallegt og mikið útsýni. Skóli og leikskóli í göngufæri.
 

img
Ásmundur Skeggjason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Höfði fasteignasala
Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone
img

Ásmundur Skeggjason

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. okt. 2010
45.900.000 kr.
46.000.000 kr.
224.1 m²
205.266 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone

Ásmundur Skeggjason

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík