Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
fjölbýlishús

Andrésbrunnur 14

113 Reykjavík

85.900.000 kr.

775.271 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2263881

Fasteignamat

77.800.000 kr.

Brunabótamat

66.330.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2003
svg
110,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

ANDRÉSBRUNNUR 14 – FJÖLSKYLDUVÆN ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ MEÐ STÓRUM SUÐURPALLI OG STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU MEÐ TENGINGU FYRIR RAFHLEÐSLUSTÖÐ.

Helgafell fasteignasala kynnir vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð við Andrésbrunn 14 í Grafarholti.
Eigninni fylgir stór og afgirtur suðurpallur ásamt bílastæði í lokaðri bílageymslu.


Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar sem hefur verið innréttuð og er nú nýtt sem aukaherbergi. Rýmið getur meðal annars hentað sem skrifstofa, gestaherbergi eða leikherbergi.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa
: Eikarparket er á gólfi ásamt fataskáp og fatahengi.
Þvottahús: Inn af forstofu er flísalagt og vel skipulagt þvottahús með innréttingu, hillum og góðri borðplötu.
Geymsla/aukaherbergi: Inn af þvottahúsi er flísalögð geymsla sem hefur verið innréttuð og er nú nýtt sem aukaherbergi.
Eldhús: Falleg svört og hvít eldhúsinnrétting með flísum á milli efri og neðri skápa. Flísar eru á gólfi.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými með eikarparketi á gólfi og góðu plássi fyrir bæði setustofu og borðstofuborð. Úr stofunni er gengið út á stóran, afgirtan suðurpall sem skapar notalega framlengingu á íbúðinni yfir sumartímann.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með eikarparketi og góðum fataskáp.
Tvö barnaherbergi: Eikarparket er á gólfum og fataskápar í báðum herbergjum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Bílageymsla: Eigninni fylgir bílastæði í lokaðri, sameiginlegri þriggja bíla bílageymslu. Innangengt er úr húsinu í bílageymsluna, þar sem einnig er þvottaaðstaða fyrir bíla og uppsett tenging fyrir bílahleðslustöð.

Sameign: Á jarðhæð hússins er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.

Viðhald hússins:
  • Nýlega hefur verið settur upp varmaskiptir í húsinu.
  • Húsið hefur verið sílanborið.
  • Skipt hefur verið um glugga eftir þörfum á norðurhlið hússins.
  • Þak hússins hefur verið yfirfarið.
Vel staðsett eign í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarholti. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu og fjölbreytt útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir:
Helgafell fasteignasala – sími 566 0000

Rúnar Þór Árnason, lgf., sími: 775 5805
Netfang: runar@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Rúnar Þór Árnason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Rúnar Þór Árnason

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. des. 2016
33.400.000 kr.
41.500.000 kr.
110.8 m²
374.549 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Rúnar Þór Árnason

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík