Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sunna Björk Atladóttir
Eva Dögg Bergþórsdóttir
Vista
einbýlishús

Kárastígur 7

565 Hofsós

50.900.000 kr.

397.036 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2143624

Fasteignamat

27.300.000 kr.

Brunabótamat

65.520.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1960
svg
128,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Kárastíg7, Hofsósi ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum.
Mikið endurnýjað, fimm herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr, alls 128,2 fm. 
Samkvæmt skráningu í fasteignaskrá HMS er íbúðarhúsið 109,4 fm., byggt árið 1960, og bílskúr 18,8 fm., byggður árið 1970.
Leigulóð hússins er 720 fm. 


Fasteignin skiptist í fjörgur herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, geymslu og forstofu. Kjallari 10,1 fm. er undir húsið að hluta. 
Komið er í flísalagða forstofu þar sem er fatahengi.
Frá forstofu er komið í eldhús sem er parketlagt, hvít innrétting með viðarborðplötu, Whirlpool bakaraofn. 
Við eldhús er þvottahús með bakdyrainngangi þar sem einnig er hægt að komast í kjallara.
Herbergi eru öll parketlögð. Herbergisgangur er parketlagður og þar við eru skápar.
Stofa er björt. Parket á gólfi og gluggar eru í austur og suður. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Upphengt salerni, hvít innrétting við vask og sturta með hengi. Gólfhiti á baðherbergi.
Bílskúr er lítill og nýtist í raun frekar sem geymsla.  
Þakplata er steypt og úr eldhúsi er hægt að komast upp á háaloft þar sem er mikið geymslurými.

Að utan er húsið klætt. Bílastæði er malarborið og stétt þar við. Að öðru leyti er garður þökulagður.
Þakjárn og þakpappi var endurnýjað árið 2015 og 2016.

Helstu endurbætur á árunum 2018-2026:
- Baðherbergi endurnýjað, þ.e. gólfefni, lagnir, innréttingar og tæki.
- Allt rafmagn endurnýjað ásamt rafmagnstöflu. Ljós í húsinu er öll Led.
- Innrétting og gólfefni endurnýjað í eldhúsi. 
- Gólf flotað og lagt nýtt gólfefni.
- Gler í gluggum endurnýjað, gluggar höfðu verið endurnýjaðir áður.


Hofsós er lítið kauptún við austanverðan Skagafjörð með fjölbreytt framboð þjónustu. Þar eru m.a. leik- og grunnskóli, sundlaug, bensínstöð, verkstæði, matvöruverslun og veitingaþjónusta. Útsýni er yfir eyjar Skagafjaðar er einstaklega fallegt og stutt er í fallega náttúru og útivist.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala

Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone
Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone