Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Klukkurimi 93

112 Reykjavík

71.900.000 kr.

830.254 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2039734

Fasteignamat

64.750.000 kr.

Brunabótamat

49.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1993
svg
86,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 12. júlí 2026 kl. 13:00 til 13:30

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - Opið hús sunnudaginn 12. júlí kl. 13:00

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 eða jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna: Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á rólegum og eftirsóttum stað innst í botnlanga við Klukkurima 93.

Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, opið eldhús og stofu, baðherbergi, sérgeymslu og suðvestur svalir með fallegu útsýni.

Nánari lýsing eignar.
Forstofa: Harðparket á gólfi og fataskápur.
Barnaherbergi: Harðparket á gólfi og fataskápur.
Hjónaherbergi: Harðparket á gólfi og rúmgóður fataskápur.
Eldhús: Opið og bjart eldhús í samliggjandi rými með stofu. Eldhúsbekkur skilur að eldhús og stofu og skapar góða vinnuaðstöðu. Falleg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, nýrri borðplötu, keramikhelluborði og tengi fyrir uppþvottavél. Rúmgóður borðkrókur er við eldhúsið.
Stofa: Björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar suðvestursvalir þar sem nýtur fallegs útsýnis.
Baðherbergi: Ný uppgert baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Geymslan er opin en auðvelt væri að aðskilja hana með léttum vegg ef óskað er eftir meira næði eða afmörkuðu geymslurými.

Sameign
Á fyrstu hæð hússins er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Húsið
Húsið stendur á rólegum stað innst í botnlanga og er klætt að utan með Steni-klæðningu. Aðeins fjórar íbúðir eru í húsinu sem skapar notalegt og friðsælt umhverfi.
Lóð og bílastæði
Lóðin er rúmgóð með góðu útisvæði umhverfis húsið. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni og þar er hleðslustöð fyrir rafbíla.
Hússjóður á mánuði er kr. 27.582-

Staðsetning
Staðsetning og nærumhverfi Staðsetning eignarinnar við Klukkurima er einstaklega góð og eftirsótt. Stutt er í alla helstu þjónustu, en þar má nefna verslunarkjarnann Spöngina, leik- og grunnskóla, Borgarholtsskóla og afþreyingarmiðstöðina Egilshöll. Allt er þetta í þægilegu göngufæri. Hverfið er rólegt, gróið og fjölskylduvænt og hentar jafnt þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á fasteignamarkaðnum sem og stærri fjölskyldum.

Hér er um að ræða bjarta og vel skipulagða íbúð á eftirsóttum stað þar sem sameinast fallegt útsýni, góð nýting rýmis, rólegt umhverfi og stutt í alla helstu þjónustu. Ný uppgert baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi ásamt nýrri borðplötu í eldhúsi gefa eigninni ferskt og vel viðhaldið yfirbragð.

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. okt. 2023
52.150.000 kr.
58.000.000 kr.
86.6 m²
669.746 kr.
20. des. 2013
20.150.000 kr.
22.500.000 kr.
86.6 m²
259.815 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík