Opið hús: Grænásbraut 1218, 262 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 01 01 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 13. júlí 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 149,3 fm. og þar af er geymsla 6 fm.
Nánari lýsing eignar
Forstofa með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Geymsla er inn af forstofu með hillum og dúk á gólfi.
Eldhús mjög rúmgott með snyrtilegri innréttingu, eldavél, tengi fyrir uppþvottavél, borðkrókur og dúkur á gólfi.
Stofa/borðstofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Hægt er að bæta við herbergi. Útgengt er úr stofunni út á afgirtan sérafnotareit með steyptum gólffleti. Hlið er á girðingunni og því auðvelt að komast út í garð hússins.
Svefnherbergisgangur með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi, parket á gólfi. Baðherbergi er innaf hjónaherbergi.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi með sturtu, snyrtileg innrétting, gluggi og dúkur á gólfi.
Barnaherbergi eru tvö í íbúðinni með parketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergi (aðal) með baðkari með sturtuaðstöðu, flísar á veggjum í kringum baðkarið, snyrtileg innrétting og dúkur á gólfi.
Þvottahús er rúmgott með glugga og dúkur á gólfi.
Geymslur eru tvær sem fylgja íbúðinni, önnur staðsett innan íbúðar og hin á stigagangi við hlið íbúðarinnar.
Hjólageymsla er í sameiginlegu rými við inngang hússins.
Í eigninni eru nýleg Led ljós sem fylgja eigninni.
Parket var endurnýjað fyrir 3 árum síðan.
Einnig var farið í múrviðgerðir og endurmálun að utan árið 2021.
Þakið, þakkantur og svalahandrið máluð.
Ofna- og neysluvatnslagnir með lokuðu kerfi.
Einstaklega skemmtileg og rúmgóð eign með möguleik á að bæta við svefnherbergi.
Frábært hverfi fyrir barnafólki, stutt í alla þjónustu, leikskóla, skóla, verslanir og afþreyingu.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.