Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Samúelsson
Andri Sigurðsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Monika Hjálmtýsdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Davíð Matthíasson
Erla Friðriksdóttir
Vista
einbýlishús

Hverfisgata 6

220 Hafnarfjörður

139.900.000 kr.

837.223 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2076374

Fasteignamat

105.200.000 kr.

Brunabótamat

86.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1932
svg
167,1 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Laus strax

Lýsing

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:
Um er að ræða sjarmerandi 167.1 fm einbýlishús sem er þrjár hæðir ásamt rislofti yfir húsi sem er nýtanlegt.
Einbýlishúsið er á steyptum kjallara og timbur þar fyrir ofan og er efri hluti húss bárujárnsklæddur.
Suður-verönd er framan við hús sem er mjög skjólgóð og af verönd er gengið niður á neðri verönd þar sem að það er heitur pottur.
Flott einbýlishús á frábærum stað sem hefur uppá möguleika að bjóða. Stutt í miðbæ Hafnarfjarðar, alla þjónustu og útivistar/göngusvæði.
Ágætis leigutekjur af íbúð í kjallara í dag.
EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR FLJÓTLEGA EFTIR KAUPSAMNING.


Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Eign er 167.1 fm merkt 01-01-01 með fastanúmer: 207-6734.
 
Kjallari er skráður 57.8 fm, aðalhæð er skráð 57.8 fm og efri hæð er skráð 51.7 fm og svo er risloft yfir efri hæð sem er óskráð en vel nýtanlegur gólfflötur þar ca. 20 fm.

Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Eignin skiptist í:
Aðalíbúð skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, risherbergi, baðherbergi, fataherbergi, þvottaherbergi og geymslu.
Íbúð í kjallara er forstofa, alrými með eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi. Sérmerkt stæði með íbúð.


Nánari lýsing á eign:
Aðalinngangur er á mið/aðalhæð og þar er komið í rúmgóða og bjarta forstofu með fataskápum, úr forstofu er stigi upp á efri hæð.
Stofa og borðstofa renna saman í opið og bjart rými og er opnanleg hurð úr stofu út á verönd.
Rúmgott endurnýjað eldhús er á hæðinni sem að er með snyrtilegri eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum og eru plötur á vegg milli skápa, uppþvottavél í innréttingu, borðkrókur.
Stigi er úr forstofu uppá efri hæð en þar eru þrjú svefnherbergi og er útgengt á suður-svalir úr hjónaherbergi og eins er inngengt á baðherbergi beint úr hjónaherbergi.
Fataherbergi með ágætis hirslum er á ganginum.
Mjög rúmgott og bjart baðherbergi með baðkari, sturtuklefa, góðar skápainnréttingar eru í kringum vask, handklæðaofn.
Af gangi efri hæðar er timburstigi uppá risloft sem að er manngengt með glugga og getur nýst sem herbergi eða sjónvarpsherbergi.
Af aðalhæð úr stofurými er stigi niður í kjallara en þar er þvottaherbergi og eins er geymsla í kjallara.
Sérinngangur er í íbúð í kjallara af suður-verönd sem er 2ja herbergja og skiptist í forstofu, stofu/borðstofu/eldhús, svefnherbergi og baðherbergi.
Heitur pottur er á suður-verönd framan við hús.
Gólfefni: Flísar, harðparket og timburfjalir eru á gólfum eignar..
 
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

img
Sveinn Eyland
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
LANDMARK fasteignamiðlun
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone
img

Sveinn Eyland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. jan. 2015
32.850.000 kr.
48.500.000 kr.
167.1 m²
290.245 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone

Sveinn Eyland

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur