Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Vista
raðhús

Tröllahraun 36

810 Hveragerði

69.900.000 kr.

698.302 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2540368

Fasteignamat

61.200.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
100,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

 
Háborg fasteignasala og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali kynna í einkasölu nýtt, vel skipulagt, fjögurra herbergja raðhús í nýju hverfi undir Hamrinum. 

Eignin afhendist fullbúin, bílastæði eru frágengin, garður, sem snýr til suðurs, verður þökulagður og þar verður um 35 fm timburverönd.
Afhending getur farið fram við kaupsamning! 


Eignin er skráð 100,1 fm og skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, eldhús, borðstofu/stofu, baðherbergi, þvottahús og geymsluloft. 

Gengið er inn í rúmgóða, flísalagða forstofu með fataskáp. 
 
Alrými samanstendur af eldhúsi og borðstofu/stofu.
Úr alrými er gengið inn í svefnherbergi og baðherbergi, þvottahús er innaf baðherbergi. 

Í eldhúsi er ljós brún, rúmgóð innrétting með eyju.
Bakaraofn er í vinnuhæð, helluborð er spanhelluborð.
Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. 

Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni. 
Fjórfaldur fataskápur er í hjónaherbergi. 
 
Baðherbergi er flísalagt að hluta.
Þar er hvít innrétting, spegill með ljósi, “walk in” sturta, upphengt wc og handklæðaofn.
 
Þvottahús er inn af baðherbergi.
Í þvottahúsi er innrétting með vaski, góðu skápaplássi og skáp fyrir þvottavél og þurrkara.
Þar er einnig lúga með stiga upp á geymsluloft. 

Harðparket er á öllum gólfum nema í anddyri, á baðherbergi og í þvottahúsi, þar eru flísar.
Gólfhiti er í eigninni og innfelld, dimmanleg ljós í alrými og forstofu. 

Úr borðstofu/stofu er gengið út á um 35 fm timburverönd sem snýr til suðurs. 

Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is. 
 

 
 
 
 

img
Kristín Rós Magnadóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Háborg fasteignasala
Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
img

Kristín Rós Magnadóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone

Kristín Rós Magnadóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík