Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
lóð

Pálmalundur

531 Hvammstangi

39.900.000 kr.

558.824 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2134264

Fasteignamat

22.450.000 kr.

Brunabótamat

29.370.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1981
svg
71,4 m²
svg
2 herb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna með stolti: ***14 ha. jörð með 35m2 bústað ásamt 36,4m2 geymslu í Vestur Húnavatnssýslu - Eignaskipti koma til greina***

Um er að ræða fallegt land við Miðfjarðarvatn en það er í 200 km frá höfuðborginni. Landið liggur í Línakradal - Vestur Húnavatnssýslu og ber heitið Pálmalundur. Á landinu er bústaður sem er 35m2 að auki er 36,4m2 geymsla. Hitaveita er komin að lóðarmörkum. Kalt vatn er tengt og þriggja fasa rafmagn. Ótengd hitaveitutúba er á staðnum. Landið er um 11 km frá Hvammstanga, sem er þekktur viðkomustaður ferðlanga þar sem selasetrið er. Auk þessa er mikil og góð þjónusta á Hvammstanga en þar má nefna glæsilegt kaupfélag með matvöruverslun, byggingarvöruverslun og búvöruverslun, banka, hárgreiðslustofur, ullarvöruframleiðslu og verslun, bílaverkstæði, saunagusu og margt fleira. Um 47 km eru yfir á Blönduós en þar eru verslanir og fjölþætt þjónusta einnig í boði. Lífleg Urriðaveiði í vatninu. Hinn fallegi Hvítserkur er í um 37 km fjarlægð. Hið sögufræga Borgarvirki er ekki langt undan. Landið býður upp á mikla möguleika. Einn hektari er ræktaður. Annars er landið að mestu framræst og er gott til ræktunar.
Eignaskipti koma til greina. Meðfram þjóðvegi 1 á þessu svæði er afgirt hestaslóð. 
Allar nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, í síma 623-1717 - svavar@fstorg.is. Fasteignasali tengist seljendum fjölskylduböndum.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. maí. 2023
14.050.000 kr.
11.500.000 kr.
71.4 m²
161.064 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone