Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
sumarhús

Merkihvoll 10

851 Hella

39.900.000 kr.

370.818 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2196845

Fasteignamat

40.850.000 kr.

Brunabótamat

44.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1991
svg
107,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Töluvert endurnýjað heilsárshús í fallegri náttúru við Heklurætur með mikilli víðsýni og stendur stutt frá árbakka Eystri Rangá í Landssveit.

Húsið er byggt 1992 en að hluta endurbyggt 2009, er 107,6 fm að stærð á tveimur hæðum. Jarðhæð er 66,1 fm og svefnloft uppi er 41,5 fm (töluvert undir súð).

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Leiðarlýsing er að keyrt er frá Reykjavík að Landvegamótum þjóðveg 1, beygt upp Landveg nr. 26, farið framhjá Langahlíð Guesthouse, framhjá á hægri hönd vegi 268 og stuttu eftir þann afleggjara er beygt inn í þetta svæði á hægri hönd, merkt Merkihvoll á skilti.

Búið er að endurnýa eldhús, endurnýja vatnslagnir ásamt baðherbergi og setja upp nýjan SpaBoy saltvatns heitan pott sem er mjög sparneytinn.

Skógarbelti bakatil veitir mikið skjól sem gerir sumardaga með sól að algerum potti við húsið og einnig einangrar þetta skógarbelti húsið vel þannig að hvorki sést  né heyrist í nágrönnum.

Stígur er frá húsinu niður að ánni þar sem þau hafa oft baðað sig og hægt þar að vaða út í lítinn hólma.

Núverandi eigendur keyptu landið/lóðina, Merkihvol 18, framan við húsið, til suðurs, til að tryggja að aldrei væri byggt né skyggt á bústaðinn eða útsýnið frá honum.

Sú lóð, Merkihvoll 18, er tæplega 5.400 fm eignarlóð sem fylgir með í kaupunum. Merkihvoll 10 er svo leigulóð frá Rangárþingi ytra, tæplega 5.800 fm að stærð.

Eignin samanstendur af forstofu, þremur svefnherbergjum, stóru svefnlofti, baðherbergi, sturtuherbergi, þvottahúsi, kaldri geymslu, endurnýjuðu eldhúsi, stofu með kamínu og stendur á tæplega 6000 fm leigulóð frá Rangárþingi ytra.

Húsið er kynnt með nýlegri varmadælu (loft í loft) í alrými, rafmagnsofnar í herbergjum og kamína er staðsett í stofu, hitakútur er fyrir heitt neysluvatn.

Borhola fyrir köldu vatni er á lóðinni og er verönd hússins um 100 fm.

Innbú getur fylgt að mestu fyrir utan persónulega muni..

Skv. eigendum er það helsta sem komið er að viðhaldi er að fara yfir húsið að utan og verönd með málningarpennsli.

Einstaklega kyrrlátur staður með miklu næði, tengt náttúrunni og fallegu víðsýni (útsýni).

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is

 

Lifum Heima Fasteignasala

phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. jún. 2021
23.550.000 kr.
24.900.000 kr.
10101 m²
2.465 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Lifum Heima Fasteignasala

phone