Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Vista
einbýlishús

Eyrarlækur 16

800 Selfoss

149.000.000 kr.

678.815 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2340507

Fasteignamat

128.050.000 kr.

Brunabótamat

137.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2022
svg
219,5 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson, löggiltur fasteignasali, ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu Eyrarlæk 16 sem er nýlegt fjögurra herbergja einbýlishús í vinsælu íbúðahverfi á Selfossi.  Húsið er mjög vandað á einni hæð, steypt og múrað að utan og þak er einhalla klætt með báru. Húsið er 219,5 fm að stærð, þar af sambyggður bílskúr 45,8 fm og stendur á 840 fm eignalóð. Hönnun hússins tekur m.a. mið af því að viðhald sé í lágmarki og innra skipulag sett upp með það að markmiði að nýta sem best stærð hússins.   Húsið stendur næst innst í botnlangagötu.    Að innan er vandað til verka og allar innréttingar- og skápar sérsmíðað, gegnheilt fiskibeinaparket, óbein lýsing og m.fl.
Drenmöl í bílaplani, ca 70 fm sólpallur með heitum potti og lítið geymsluhús.  


Nánari lýsing:
Þrjú góð svefnherbergi,  fataskápar í þeim öllum, forstofa, baðherbergi, þvottahús með innréttingu og salernisaðstöðu.  Stofa- borðstofa og eldhús í opnu og björtu rými og úr því er útgengt út í garð í gegnum yfirbyggða verönd. Vönduð eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél, kaffivél og tveir ofnar.  Hægt er að sitja við eldhúseyju á barstólum. Rúmgott baðherbergi, innrétting, spegill með lýsingu "walk inn" sturta og baðkar.  Úr þvottahúsi er innangengt í rúmgóðan bílskúr með flísum á gólfi.
Húsið er kynt með svæðaskiptum gólfhita með digital stýringum.  Innfelld Led-lýsing í loftum og víða í húsinu er óbein lýsing.  Á gólfum er vandað gegnheilt parket og á votrýmum eru flísar. C.a 70 fm sólpallur klæddur rásuðum harðvið, heitur pottur og lítill geymsluskúr.
Virkilega spennandi og nýleg eign á fínum stað.

Bókið skoðun.
Hægt er að kaupa innbú hússins með samkvæmt nánara samkomulagi.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       

                                                                                                               
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum