Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
svg

282

svg

200  Skoðendur

svg

Skráð  14. júl. 2026

fjölbýlishús

Lækjargata 4

101 Reykjavík

94.900.000 kr.

910.749 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2002685

Fasteignamat

76.500.000 kr.

Brunabótamat

55.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1992
svg
104,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulögð mikið endurnýjuð, björt og einstaklega vel um gengin þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð í lyftuhúsi ásamt bílastæði í bílakjallara, á besta stað í miðbænum. Samtals er eignin skráð 104,2 fermetrar sem skiptist í 85 fermetra íbúð og 5,7 fermetra geymslu ásamt 13,5 fermetra bílastæði. Eignin  er með rúmgóðri og bjartri stofu, nýju opnu eldhúsi, tvö herbergi ásamt baðherbergi. Geymsla í kjallara, bílastæði í bílakjallara. Frábær staðsetning í miðbænum

Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is sem einnig sýnir eignina.

Gengið er inn í íbúðina um snyrtilegan stigagang með lyftu. Komið er inn í forstofurými íbúðarinnar þar eldhús er til vinstri og opið til stofu. Stór fataskápur er í rýminu, flísar á gólfi milli útidyra og fataskápar.
Eldhúsið er nýlega endurnýjað, með stórri hvítri eldunareyju og dökkgrárri innréttingu á vegg. Á innréttingunum eru afar fallegar massívar borðplötur. Flísar eru á gólfi milli innréttinganna. Eldhúsið er rúmgott, með góðu vinnuplássi og afar vel heppnað.
Stofa er rúmgóð og björt, stór gluggi úr eldhúsrými og annar útbyggður gluggi til suðausturs yfir Lækjargötuna og gott útsýni yfir hverfið og út Lækjargötuna. Í enda stofunnar er gangur og gluggi í enda hans, sem veitir enn frekari birtu inn í rýmið. Herbergin eru tvö, sitt til hvorrar handar og baðherbergi á milli þeirra. Hjónaherbergið er með glugga út að Lækjargötu og fataskáp. Minna herbergið er nýtt sem vinnuherbergi og með glugga og svölum út að baklóðinni. Baðherbergi er flísalagt, veggir og gólf, með sturtuklefa, innréttingu, plássi fyrir þvottavél og þurrkara og glugga.
Geymsla, 5,7 fermetrar, er í kjallara, og eigninni fylgir bílastæði í bílageymslu. Húsið hefur að sögn fengið gott viðhald undanfarin ár, og hefur þak verið endurnýjað og gluggar eftir þörfum.

Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign í miðbænum. Eign sem vert er að skoða.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. jún. 2022
55.200.000 kr.
80.000.000 kr.
104.2 m²
767.754 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík