Lýsing
Húsinu hefur verið vel við haldið á síðustu árum:
- Það var nýlega múrviðgert og málað að utan.
- Gluggar og gler endurnýjuð þar sem þörf var á.
- Þak yfirfarið og lagfært.
Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með söluyfirliti, teikningu, yfirlýsingu húsfélags ofl.
Helstu kostir:
Mikið endurnýjuð íbúð
Tvö svefnherbergi
Ný eldhúsinnrétting
Ný Harbour oak grey gólfefni frá Birgisson
Nýjar innihurðir
Bjart og opið alrými
Svefnherbergi með útgengi á suðursvalir
Efsta hæð
Frábær staðsetning í hjarta miðbæjarins
Nánari lýsing:
Forstofa: Stór forstofa er sameiginleg með annarri íbúð og er því ekki inni í skráðum fermetrum.
Stofa: Björt og rúmgóð með góðri lofthæð og stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Ný gólfefni eru á íbúðinni.
Eldhús: hefur verið endurnýjað með glæsilegri viðaráferð á innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi og eyju sem nýtist jafnframt sem borðaðstaða. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur geta fylgt með.
Svefnherbergi: er rúmgott með útgengi út á skjólgóðar svalir á bakhlið hússins.
Baðherbergi: hefur verið endurnýjað með upphengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtilegri innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél innan íbúðar.
Eignin er staðsett á einum eftirsóttasta stað miðborgarinnar þar verslanir, veitingastaðir, kaffihús eru allt í kring. Sundhöll Reykjavíkur, skólar og öll helsta þjónustu í göngufjarlægð. Þetta er einstaklega spennandi eign fyrir þá sem vilja búa í hjarta borgarinnar eða leita að vandaðri fjárfestingu.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður