Lýsing
Falleg, björt og mikið endurnýjuð 101 fm, fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi með sérmerkt bílastæði, suðursvölum með æðislegu útsýni og þvottahúsi innan íbúðar. Óskráð geymsla í kjallara, 8 fm, fylgir eigninni. Eignin er því 109 fm í heild.
** Getur losnað fljótlega.**
Eignin býður upp á:
*3 svefnherbergi
*Stofu/borðstofu og rúmgott sjónvarpshol mögulegt að breyta í fjórða svefnherbergið)
*Uppgert eldhús með Siemens tækjum og innréttingu frá KVIK
*Uppgert baðherbergi
*Þvottahús innan íbúðar
*Merkt bílastæði
*Sérgeymslu í sameign með hillum (8 fm)
Nánari lýsing á rýmum:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur með rennihurð frá KVIK
Svefnherbergi 1: Parket á gólfi og stór fataskápur frá KVIK með rennihurðum
Svefnherbergi 2 og 3: Parket á gólfi, góðir gluggar
Stofa/Borðstofa: Rúmgott og bjart rými, með útgengi á góðar suðursvalir sem eru með viðar gólfflísum
Sjónvarpshol: Parket á gólfi, innfellt rými fyrir sjónvarpið og alla tengla. Virkilega snyrtilegt rými
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir, KVIK innrétting með speglaskáp, handklæðaofn, upphengt salerni og walk-in sturta. Hiti í gólfi
Eldhús: Hvít KVIK innrétting, spanhelluborð, innbyggður ísskápur, bakaraofn og örbylgjuofn frá Siemens, uppþvottavél frá Electrolux, háfur frá Eico, stór útdraganlegur búrskápur. Hiti í gólfi
Þvottahús: Uppgert með flísum á gólfi, pláss fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Upphengdar snúrur
Sameign: Snyrtileg með hjóla- og vagnageymslu. Húsvörður er til staðar sem sér um helsta viðhald.
Helstu endurbætur (2020):
Ný gólfefni: Flísar frá Flísabúðinni og Pergo-parket frá Agli Árnasyni
Nýjar innihurðir (hvítlakkaðar frá Birgisson)
Nýjar innréttingar og fataskápar frá KVIK
Baðherbergi endurnýjað að fullu
Gólfhiti í eldhúsi og baðherbergi
Viðhald og framkvæmdir að utanverðu:
Húsið málað að utan og þak yfirfarið (2020)
Rennihurð og sjálfvirk innri hurð sett í anddyri (2021)
Lóð lagfærð og girðing endurnýjuð (2022)
Nýr dyrasími með myndavél (2023/24)
Hús málað og sprunguviðgert (2026)
Þetta er verulega falleg og vel skipulögð íbúð á eftirsóttum stað í Grafarvogi, stutt í alla helstu þjónustu. Frábær kaup!
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.