Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
einbýlishús

Aðalstræti 65

450 Patreksfjörður

54.900.000 kr.

361.422 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2123715

Fasteignamat

36.100.000 kr.

Brunabótamat

55.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1934
svg
151,9 m²
svg
8 herb.
svg
2 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Betri stofan fateignasala kynnir:  Mjög fallegt, gott og nokkuð endurnýjað einbýlishús á þremur hæðum góðm stað á Patreksfirði, jarðhæð, hæð og ris. Tvær íbúðir eru í húsinu, önnur á jarðhæð, hin á aðalhæð og í risi. 

Nánari lýsing eignar:
Jarðhæð: Sérinngangur, forstofa og lítið salerni án baðaðstöðu. Innaf forstofu er lítil geymsla. Hiti er í gólfi forstofu og á salerni sem er flísalagt. Íbúðin skiptist í tvö rými annað með nýlegri eldhúsinnréttingu með innbyggðum ískáp og uppþvottavél auk borðkróks, hitt er stofa með svefnrými. Parket á gólfi.
Miðhæð: Rúmgóð forstofa, flísalagt baðherbergi með sturtu og salerni, eldhús með nýlegri eldhússinnréttingu með innbyggðum ískáp og tengingu fyrir þvottavél. Auk þess eru á hæðinni þrjú herbergi; borðstofa, stofa og forstofuherbergi. Parket er á gólfum nema í forstofu sem er með sísalteppi. Salernið er með hita í gólfi.
Rishæð: Stigi er úr forstofu á miðhæð upp í risið sem er með einu stóru svefnherbergi og tveimur minni.

Viðhald og endurbætur:
Um er að ræða mikið uppgert járnklætt timburhús á steyptri jarðhæð. Blásið var steinull milli útveggja á sínum tíma.  Dren og klóaklögn voru endurnýjuð um árið 2000. Járn og þak var endurnýjað haustið 2018. Skipt var um ramma í gluggum og skipt um gler sem er tvöfalt með gasfyllingu. Rafmagnslagnir og rafmagnsskápar voru endurnýjaðar á sínum tíma en rafmagnsskápur með stofntöflu er nýlegur auk þess sem skipt var um rofa og tengla í húsinu.  Inntak fyrir ljósleiðara er komið í hús. Nýlegt grindverk kringum lóð. Húsið er kynnt með heitu vatni frá Orkubúi Vestfjarða.

Allar nánari upplýsingar gefur:
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is   


 
  
                              
 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. apr. 2016
8.580.000 kr.
8.500.000 kr.
151.9 m²
55.958 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone