Lýsing
Í íbúðinni eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, forstofugangur, stofa og borðstofa, eldhús, þvottahús, geymsla og baðherbergi. Sérgeymsla á jarðhæð og hjóla/vagnageymsla í sameign.
Nánari lýsing:
Komið er inn í parketlagt hol og gang með fataskápum.
Stofan er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á suðursvalir með fallegu útsýni yfir bæinn.
Svefnherbergin eru þrjú með parketi á gólfum og góðujm fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt, upphengt salerni, hvít innrétting, baðkar með sturtu.
Eldhúsið er flísalagt, hvítr innrétting og góður borðkrókur.
Innangengt í þvottahús úr eldhúsi, en það er flísalagt með fallegt útsýni út fjörðinn.
Geymsla með hillum er inn af þvottahúsi.
Á jarðhæð er lítil sérgeymsla íbúðarinnar ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Þak endurnýjað sumarið 2026. Íbúðin var endurnýjuð að innan um 2005-2006.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.