Lýsing
Miklaborg kynnir: Góð og vel skipulögð íbúð í kjallara í tvíbýlishúsi á frábærum stað í vesturborginni. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbegi, stofu, eldhús, baðherbergi og hol ásamt sérgeymslu og hlut í sameiginlegu þvottahúsi.
Sérinngangur er að íbúðinni og er hún laus við kaupsamningsgerð.
Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.
Forstofa er flísalögð með fatahengi. Hol með parketi. Eldhús er með nýlegri innréttingu og glugga. Þar er halogenhelluborðog bakaraofn.
Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni. Stofa er með eikarparketi
Baðherbergi er endurnýjað með sturtuklefa. Það er flísalagt í hólf og gólf.
Vinnukrókur er í holi og geymsla undir stiga.
Sameiginlegt þvottahús fylgir og sérgeymsla.
Góð eign á rólegum stað í vesturborginni.
Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.