Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Freyja Sigurðardóttir
Ágústa Hauksdóttir
Andrea Guðrún Gunnlaugsdóttir
Glódís Helgadóttir
Hlynur Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Traðarberg 5

221 Hafnarfjörður

87.900.000 kr.

729.461 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2080235

Fasteignamat

79.000.000 kr.

Brunabótamat

68.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1991
svg
120,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hraunhamar og Einar Örn lgf. kynna bjarta og vel skipulagða 4–5 herbergja endaíbúð á efstu hæð í vinsælu fjölskylduhverfi í Setbergi. Íbúðin hefur verið smekklega endurnýjuð, er með stórri stofu, fallegu eldhúsi, þremur svefnherbergjum með möguleika á því fjórða, tveimur svölum og góðri geymslu í kjallara.

Eignin er skráð samkvæmt FMR samtals 120,5 fm en þar af er íbúð 113,5 fm og 7 fm geymsla í kjallara. 

Nánari lýsing:
Forstofa parketlögð með fataskápum.  
Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi og útgengi á svalir. Hægt er að stúka af hluta stofunnar og útbúa fjórða svefnherbergið.
Endurnýjað eldhús með hvítri U-laga innréttingu auk skápa við vegg. Gott skápapláss, ofn í vinnuhæð, helluborð og vaskur við glugga.
Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi, fataskápum og útgengi á svalir. 
Svefnherbergi II er parketlagt með fataskáp.
Svefnherbergi III er parketlagt með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu, klósett, skápur, innrétting með handlaug og speglaskáp.  
Þvottahús með flísalögðu gólfi, vinnuborði og hillum.  
Í kjallara er 7 fm geymsla ásamt sameiginlegri hjólageymslu
Sameiginleg hleðslustöð á bílastæði. 

Eigendur réðust í umfangsmiklar endurbætur á eigninni árið 2019, m.a.:
  • Eldhús endurnýjað.
  • Nýjir skápar settir upp í öllum rýmum.
  • Nýtt parket lagt á gólf.
  • Nýjar innihurðir.
  • Skipt um gler í hluta glugga.
  • Rafbúnaður uppfærður með fjölgun rofa og tengla.
Eignin er einstaklega vel staðsett í þessu eftirsótta og fjölskylduvæna hverfi þar sem örstutt er í skóla og leikskóla. 

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Örn Ágústsson löggiltur fasteignasali, s: 888-7979 eða á einar@hraunhamar.is.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. jan. 2019
41.900.000 kr.
45.900.000 kr.
120.5 m²
380.913 kr.
2. júl. 2014
25.250.000 kr.
29.500.000 kr.
120.5 m²
244.813 kr.
11. des. 2009
23.400.000 kr.
21.000.000 kr.
120.5 m²
174.274 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður