Lýsing
Íbúð: 116,7fm.
Bílskúr: 26,1fm.
Sér geymsla í sameign - er um 7fm. og er ekki inní fermetratölu íbúðarinnar.
Nánari Lýsing:
Anddyri er með flísum á gólfi og fataskáp. Anddyrið er afmarkað með glerflísum.
Úr anddyri er komið í rúmgott hol með eikarparket á gólfi.
Eldhús með eldri snyrtilegri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa, pláss fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi og góður borðkrókur með mögnuðu útsýni. Opið á milli eldhúss og stofu.
Stofan er rúmgóð með eikarparket á gólfi, útgengt út á nýlega yfirbyggðar svalir til vesturs með flísum á gólfi. Glæsilegt útsýni á svölunum.
Fjögur svefnherbergi með eikarparketi á gólfi, fataskápar í tveimur herbergjum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. "Walk-in" sturta og upphengt salerni. Pláss fyrir þvottavél á baðherbergi.
Um 7fm. sér geymsla í sameign sem er ekki inní birtum fermetrum.
Bílskúr með nýlegri bílskúrshurð. Bílskúrinn er með steyptu gólfi.
Snyrtileg sameign, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Í sameign er líka sameiginlegt þvottahús.
Skjólsæll sameiginlegur garður er bakvið húsið með leiktækjum fyrir börn.
Viðhald:
- Nýlega búið að endurnýja rafmagn í sameign.
- Nýleg lyfta.
- Búið að skipta um glugga og gler í sameign og í íbúð.
- Nýlega viðgert þak.
- Hitalagnir í stétt.
- Endurbætur á lóð að ofanverðu.
- Nýlegar rafdrifnar útihurðir í sameign.
- Nýlegar svalalokanir.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason - lgf., email: runar@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.