Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Vista
lóð

Áströð 5

851 Hella

8.900.000 kr.

Fasteignanúmer

F2342977

Fasteignamat

8.270.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
0 m²
svg
0 herb.

Lýsing

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna. Áströð 5, Rangárþingi ytra.
Einstök 7.390 m² íbúðarlóð með teikningum og stórbrotnu útsýni.


Til sölu er glæsileg 7.390 m² íbúðarhúsalóð að Áströð 5 í Rangárþingi ytra. Við Landveg (26) skammt ofan við Laugaland í Holtum, austan Landvegar. Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja byggja sér framtíðarheimili í fallegu sveitaumhverfi þar sem friðsæld, náttúra og stórkostlegt útsýni fara saman. Lóðin er skráð sem íbúðarhúsalóð og því er heimilt að hafa þar lögheimili. 
Fyrir lóðina liggja þegar fyrir arkitekta- og verkfræðiteikningar af rúmlega 108 m² einbýlishúsi. Húsið hefur verið hannað með áherslu á birtu, útsýni og hagkvæmt skipulag þar sem rúmgott alrými nýtur sín til fulls. 
Óviðjafnanlegt útsýni
Frá lóðinni blasir við einstök fjallasýn:
•    Hekla í norðaustri
•    Eyjafjallajökull í suðvestri
•    Vestmannaeyjar í suðri

Sérstaða lóðarinnar felst í því hvernig landslagið rammar inn útsýnið. Þrátt fyrir að lóðin standi í um 100 metra hæð yfir sjávarmáli mynda holt og hæðir náttúrulegan sjónramma þar sem Vestmannaeyjar njóta sín á einstakan hátt úr stofurými hússins.

Mikill byggingarréttur
Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að reisa:
•    Einbýlishús allt að 250 m²
•    Bílskúr allt að 60 m²
•    Gestahús allt að 60 m²
•    Útihús eða geymsluhús allt að 300 m²
Að auki er heimilt að byggja tveggja hæða hús með mænishæð allt að 10 metrum, sem gefur möguleika á enn glæsilegra útsýni og fjölbreyttari nýtingu eignarinnar. 

Helstu upplýsingar
•    Staðsetning: Áströð 5, Rangárþing ytra
•    Fasteignanúmer: F2342977
•    Lóðarstærð: 7.390 m²
•    Lögheimilisskráning leyfileg
•    Arkitekta- og verkfræðiteikningar fylgja
•    Heimild fyrir tveggja hæða húsi
•    Hámarksstærð íbúðarhúss 250 m²
•    Fasteignamat 2026: 8.270.000 kr.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali, snorri@husfasteign.is s. 8648090

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

img
Snorri Sigurfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
HÚS fasteignasala
Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
img

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum