Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórarinn Halldór Óðinsson
Vista
sumarhús

Hreðavatn 25

311 Borgarnes

25.000.000 kr.

485.437 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2109229

Fasteignamat

28.200.000 kr.

Brunabótamat

34.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1975
svg
51,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Hreðavatn 25, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða sumarbústað, 51,5 fm að stærð skv. skráningu HMS á leigulóð í skipulagðri frístundabyggð úr landi Hreðavatns. Húsið er á óskiptri lóð með öðrum sumarhúsum í hverfinu (efra svæði ) innan Hraunvéa sem er leigutaki lands. Húsið er kynt með hitaveitu í lokuðu kerfi.


Húsið er timburhús á járnbitum sem hvílir á steyptum súlum, klætt standandi timburklæðningu að utan en panell að innan. Steyptur lítill skriðkjallari undir miðju hússins nýttur sem lagnarými. Parket á öllum gólfum utan þess að dúkur er á baðherbergisgólfi. Svefnherbergi eru 3 og eru kojur í 2 herbergjum.   Eldhús og stofa mynda lítið alrými.  Gegnheil viðarinnrétting  með skenk er í eldhúsi með  eldavél, örbylgjuofni og og kæliskáp. Gengið er úr stofu út á sólpall með skjólveggjum sem snýr mót suðri.

Baðherbergi er með sturtu, handlaug og tengi. Þaðan er gengið út á sólpallinn.
Geymsla og heitur pottur á sólpalli með skjólveggjum á tvær hliðar.
Lóðin er vel staðsett, næstefst við götuna, vel hirt með grasflöt og trjágróðri.
Skift er um þakefni hússins og þakkantur er endurnýjaður.
Sumarhúsasvæðið að Hreðavatni er vinsælt og þar eru margar náttúruperlur í næsta nágrenni.  Má þar nefna Glanna í Norðurá, Hreðavatn og Baulu. 

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Nes fasteignasala ehf

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
phone

Nes fasteignasala ehf

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
phone