Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Upplýsingar
svg
Byggt 1988
svg
52 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson fasteignasali í síma 7751515 og Betri Stofan kynna:  65 fm Sumarbústað í Vaðnesi. Markabraut 9a sem er hús byggt 1988 og er á eignarlóð. Fallegur gróður. Hitaveita. Heitt vatn og kalt vatn er á svæðinu. 
 
Húsið er á 4.000 fm eignarlandi í Vaðnesi 805 Grímsnes Selfoss. Skiptist í 3 svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu. Eignin er skráð 52 fm en er í raun 65 fm.
Bústaðurinn var byggður 1988 og viðbygging gerð árið 1998. Einn eigandi frá upphafi. 
Gróið land og bílastæði á lóðinni.
Aðeins ca. 15 mín keyrsla til Selfoss og 50 mín til Reykjavíkur. Stutt á nokkra golfvelli á Suðurlandinu. 

Nánari lýsing: 
Anddyri, rúmgott með skáp. Bústaðurinn er panelklæddur að innan. Í húsinu er hitaveitutengt ofnakerfi. 
Baðherbergi með sturtuklefa. Opnanlegur gluggi. Falleg innrétting.
3 svefnherbergi. 
Eitt svefnherbergi er með kojum. 
Hin tvö með rúmum og annað þeirra með skáp. 
Stofa og eldhús í opnu rými, uppþvottavél. Falleg hvít IKEA innrétting. 
Við húsið hefur verið bætt rúmgóðum sólskála sem eykur bæði birtu og nýtanlegt rými.
Parket á öllum gólfum nema plastparket á sólstofu og dúkur á baði.

Húsið er kynnt með venjulegum ofnum. 
Garðhús með hillum og sólpalli.
Geymsluskúr áfastur bústaðnum fyrir inntaki á hitaveitu.
Góður pallur er í kringum allt húsið og þar er heitur pottur.
Grasflatir eru við húsið. 
Við húsið er falleg útilýsing. 

Bústaðurinn stendur á 4.000 fm grónu eignarlandi með fallegum gróðri, grasflötum og góðum sólpöllum.
Borhola fyrir kalt vatn fylgir, sameiginleg með Markabraut 9b.
 
Skráð eign skv. HMS 52 fermetrar, en sólskáli er ekki kominn inní stærð eignarinnar, og því er eignin í raun 65 fm.
Sumarhús sem er staðsett í einu af eftirsóttustu sumarhúsasvæðum landsins. Svæðið er með venjulegu læstu hliði. 
Stutt keyrsla á tvo 18 holu golfvelli við Öndverðarnes og Kiðjaberg.

Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 775-1515, tölvupóstur jason@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík