Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
sumarhús

Lambaás 9

311 Borgarnes

64.900.000 kr.

636.275 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2256313

Fasteignamat

43.550.000 kr.

Brunabótamat

49.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2001
svg
102 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Mjög sjarmerandi sumarhús á eignarlóð með hitaveitu, svefnlofti, fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og stórum sólpalli í landi Indriðastaða við Skorradalsvatn.

Húsið er byggt 2001, jarðhæð er um 63 fm, svefnloft er um 34 fm (að miklu leiti undir súð) og geymsluskúr á palli er u.þ.b. 5 fm.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is


Húsið er timburhús á steyptum grunni, forstofa, stofa/eldhús/borðstofa saman í alrými, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi og svefnloft yfir hluta hússins (gangur/brú milli herbergjanna sitt hvoru meginn). 
  • Í húsinu er hitaveita og ofnakerfi til kyndingar.
  • Verönd kringum húsið er um 100 fm að stærð og á henni er heitur pottur ásamt skjólveggjum.
  • Geymsluskúr er einnig á verönd sem er um 5 fm að stærð.
  • Aðkoma að húsinu er mjög góð og næg bílastæði.
  • Gróin og skógi vaxin lóð sem ávallt hefur verið vel hugsað um. 
  • 15 fm sólpallur er í fallegu rjóðri niður í skógi þar sem hægt er að sitja.
  • Sumarhúsasvæðið er aðgangsstýrt með rafmagnshliði sem stýrt er með síma. 
Lóðin að Lambaás 9 er eignarlóð (F2256313) með birta stærð 4.293 fm, mjög gróin og stendur húsið á henni.

Eigendur eiga einnig lóðina við hliðina, Lambaás 7, sem einnig er eignarlóð (F2333713), birt stærð 3.649 fm og er heimilt að reisa á henni frístundarhús allt að 100 fm, skv. deiliskipulagi svæðis.

Lóð 7 er einnig hægt að fá keypta skv. nánara samtali.


Nánari lýsing eignar: 
Forstofa: Innbyggður fataskápur. Náttúruflísar á gólfi.
Alrými: Eldhús og stofa mynda rúmgott og bjart alrými þar sem er góð lofthæð og stórir tignarlegir gluggar. Í stofu er kamína og er útgengt þaðan út á verönd. Eldhús með viðarinnrétting, efri skápum og eyju. Gert ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Parket á gólfi.
Herbergi I: Fataskápur. Parket á gólfi. Sérbaðherbergi með sturtu, handlaug og gólfsalerni. Opnanlegt fag. Náttúruflísar á gólfi. 
Herbergi II: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Handlaug, sturtuklefi og salerni. Handklæðaofn. Aðstaða fyrir þvottavél. Útgengt út á verönd. Náttúruflísar á gólfi. 
Svefnloft: Gólflötur svefnlofts er 34,3 fm.Tvö herbergi (opin fram á gang en lítið mál að loka). Gangur á milli herbergja þvert yfir húsið sem veitir gott flæði og aukna birtu. Gluggi með opnanlegu fagi í herbergjum. Timburgólf. 

Húsinu getur fylgt innbú að frátöldum persónulegum munum í eigu seljanda. 

Lambaás 9 er falleg eign á frábærum stað í Skorradal með mögnuðu útsýni til fjalla og niður að Skorradalsvatni með möguleika að byggja annað sumarhús á næstu lóð (Lambaás 7) eða sameina lóðir í eina stóra eignarlóð. Sumarhúsið hefur fengið mjög gott viðhald að innan sem utan.


Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is

Lifum Heima Fasteignasala

phone

Lifum Heima Fasteignasala

phone