Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þóra Birgisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Þverholt - til leigu 9

270 Mosfellsbær

Tilboð

Fasteignanúmer

F2085012

Fasteignamat

91.550.000 kr.

Brunabótamat

84.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1990
svg
155,1 m²
svg
7 herb.
svg
5 svefnh.
Opið hús: 27. júlí 2026 kl. 18:00 til 18:30

Opið hús: Þverholt - til leigu 9, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 27. júlí 2026 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Lýsing

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lggf. kynna frábærlega vel skipulagða 7 herb. íbúð á 3ju og efstu hæð miðsvæðis í Mosfellsbæ til  leigu.
Íbúðin leigist til eins árs eða eftir nánara samkomulagi.

Við Þverholt 9, í nýlega uppgerðu húsi er þessi vel skipulagða og fjölskylduvæna eign laus til afhendingar. 
Eignin er skráð 155,1 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, íbúðin er þó töluvert stærri að gólfleti enda hluti efri hæðarinnar undir súð með góðri nýtingu.
Íbúðin skiptist í neðri hæð með 2 svefnherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi, baðherbergi og tvískiptri stofu, efri hæð er með 3 svefnherbergi og sjónvarpsstofu. Geymsla, 2,8 fm. er við inngang í íbúðina.
Reykingar og gæludýr er ekki leyfð í íbúðinni og skilvísi og meðmæli nauðsyn.

Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignsali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone