Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Þór Hilmarsson
Guðmundur H. Valtýsson
Vista
sumarhús

Stráksmýri 18

311 Borgarnes

43.000.000 kr.

849.802 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2261895

Fasteignamat

32.750.000 kr.

Brunabótamat

35.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2002
svg
50,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fjárfesting fasteignasala ehf. og Ómar Örn Sigurðsson kynna eignina Stráksmýri 18, 311 Borgarbyggð, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 226-1895 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Stráksmýri 18 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 226-1895, birt stærð 50.6 fm.

SUMARHÚS Á EIGNARLÓРMEÐ HITAVEITU, HEITUM POTTI ,STEYPTRI GÓLFPLÖTU (HITI Í GÓLFI) LÓÐIN HÖNNUÐ AF LANDLAGSARKITEKTI. RAFMAGNSHLIÐ SEM STÝRT ER MEÐ APPI.

Fallegur og vel viðhaldinn 50,6 fm. sumarbústaður sem er staðsettur innst í botnlanga í Indriðastaðahlíð, ofan vegar við Skorradalsvatn. Fallegt útsýni er upp á Skarðsheiði og Skessuhorn. Norskur Landslagsarkitekt hannaði alla lóðina og er hún einstaklega falleg og sérstök blanda af trjám og formið á pallinum einstakt og fallegt.
Eignarlóð 2.726 fm, þar sem tréin mynda mjög gott skjól fyrir vindi næst húsinu og skyggja líka á næstu bústaði. Yndislegur lækur er á lóðinni við fjallsræturnar.
Aksturstím frá Reykjavík er rétt rúmlega klukkustund og aðeins um 15 mínútna akstur í Borgarnes þar sem er öll nauðsynleg þjónusta, verslanir, eldsneyti og ekki má gleyma glæsilegu sundlauginni þar.

Nánari lýsing:  Anddyri er flísalagt.
Eldhús: Eldri innrétting, keramik span helluborð, ísskápur og örbylgjuofn
Baðherbergi: Flísalagt gólf, sturtuklefi og ný innrétting, vaskur og blöndunartækin frá Vola, spegill með lýsingu.
Svefnherbergi 1: með tvíbreiðu rúmi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Með 120 cm rúmi, parket á gólfi
Stofa: Parketlögð með kamínu
Stór og fallegur sólpallur ca 100 fm. með heitum potti (hitaveita) og útisturtu. 
Nýtt parket var lagt á eldhús, stofu og herbergi í febrúar 2022

Skipt hefur verið um alla lýsingu, bæði inni og úti. Nýtt rafmagn dregið í ásamt því að nýir rofar og raflagna efni hefur verið endurnýjað.
Skipt hefur verið um hitaveitugrind, allt þar nýtt.
Stórt bílastæði er við bústaðinn.
Framan við húsið er auður reitur sem er upplagður fyrir gestahús.
Allur bústaðurinn hefur verið málaður að innan sem utan þar sem litir, ljós og aukahlutir voru valdir af innanhússarkitektinum Katrínu Ísfeld. Er búið að teikna upp nýtt eldhús miða við stækkun á bústaðnum og fylgir teikningin með ef kaupandi hefur áhuga á því.

Nánari upplýsingar veitir Ómar Örn Sigurðsson , í síma 8970203, tölvupóstur omar@fjarfesting.is.

Fjárfesting fasteignasala ehf.

Fjárfesting fasteignasala ehf.

Borgartúni 31, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. jún. 2024
29.500.000 kr.
32.000.000 kr.
10101 m²
3.168 kr.
30. ágú. 2022
19.000.000 kr.
28.500.000 kr.
50.6 m²
563.241 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fjárfesting fasteignasala ehf.

Fjárfesting fasteignasala ehf.

Borgartúni 31, 105 Reykjavík