Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
136,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 26. júlí 2026 kl. 16:00 til 16:30

Opið hús: Baugalda 13, 850 Hella. Eignin verður sýnd sunnudaginn 26. júlí 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Fallegt og vel skipulagt 4-5 herbergja endaraðhús á rólegum og fjölskylduvænum stað á Hellu.
  • Sveitakyrrð og friðsælt umhverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu
  • Vel skipulagt endaraðhús með þremur rúmgóðum svefnherbergjum og björtu alrými.
  • Sólpallur með skjólgirðingu sem skapar notalegt útisvæði
  • Innbyggður bílskúr með innangengi í íbúð.

Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í  S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar er 136,60 m² samkv. HMS.

Eignin skiptist í forstofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Innangengt er í bílskúr frá þvottahúsi.

Nánari lýsing:
Forstofa: 
Flísalögð forstofa með þægilegu aðgengi inn í alrými eignarinnar.
Eldhús: Fallegt og vel skipulagt eldhús með góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél ásamt vönduðum heimilistækjum. Eldhúsið er opið inn í stofu og borðstofu og myndar bjart og rúmgott alrými.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með góðri lofthæð og stórum gluggum sem veita fallega náttúrulega birtu. Útgengt er á sólpall með skjólgirðingu.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi II: Bjart og rúmgott herbergi með fataskáp. 
Svefnherbergi III:  Bjart og rúmgott herbergi með fataskáp. 
Svefnherbergi/skrifstofa:  Rúmgott herbergi sem hentar vel sem gestaherbergi eða skrifstofa. Parket á gólfi, útgengt út á Sólpall. 
Baðherbergi: Baðherbergi með fallegri vaskinnréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og rúmgóðri "walk-in" sturtu með glervegg. Flísar á gólfi og baðþyljur á hluta veggja. 
Þvottahús: Þvottahús með innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Innangengt er þaðan í bílskúr. Flísar á gólfi.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með vélslípuðu gólfi, gönguhurð út á baklóð og rafdrifinni bílskúrshurð. Búið er að útbúa herbergi inn af bílskúr sem notað er sem skrifstofa í dag. 

Ath - Skipulagi hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum. Mynd af bílskúr hefur verið unnin með aðstoð tölvutækni til að gefa hugmynd um nýtingu.

Lóð: Snyrtileg lóð með grasflöt, sólpalli með skjólgirðingu og drenmöl í bílaplani. Útgengt er á pallinn bæði úr stofu og bílskúr.

Hella býður upp á notalegt og fjölskylduvænt umhverfi þar sem öll helsta þjónusta er til staðar. Á staðnum er glæsilegur leik- og grunnskóli með framúrskarandi aðstöðu, frábær sundlaug, íþróttamiðstöð, verslanir og heilsugæsla. Falleg náttúra og rólegt umhverfi gera Hellu að eftirsóttum stað fyrir fjölskyldur og þá sem vilja njóta lífsins í friðsælu umhverfi.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. okt. 2024
52.850.000 kr.
63.900.000 kr.
10101 m²
6.326 kr.
29. maí. 2018
14.000.000 kr.
36.400.000 kr.
136.6 m²
266.471 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík