Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Dan Valgarð S. Wiium
Ásta María Benónýsdóttir
Vista
raðhús

Krummahólar 13

111 Reykjavík

82.900.000 kr.

975.294 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2049322

Fasteignamat

69.900.000 kr.

Brunabótamat

52.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1989
svg
85 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 29. júlí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

Kjöreign fasteignasala kynnir fallegt og vel skipulagt þriggja herbergja 85 fermetra endaraðhús á einni hæð á frábærum stað innst í götu við Krummahóla 13.  Eignin skiptist í forstofu, þvottahús/geymslu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og geymsluskúr á lóð. Útgengi úr stofu út á  timburverönd með skjólveggjum í stórum aflokuðum garði. Fyrir fram hús er minni timburverönd með skjólvegg ásamt hellulögðu bílaplani.
Nánari lýsing: Komið  er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Til hægri frá forstofu er rúmgóð þvottahús/geymsla  Í framhaldi af forstofu tekur við lítill gangur þar sem eru baðherbergi og hjónaherbergi, en til vinstri frá gangi er stofa, eldhús og minna herbergi.
Stofan er björt og vistleg með gluggum í tvær áttir, en gólfsíðir gluggar eru á öllum veggnum sem snýr að sólpallinum. Fallegt nýlegt parket er á stofu og gangi. Úr stofu er gengið í eldhús og barnaherbergi, en gluggar á þessum rýmum snúa að framlóðinni. Eldhús er með nýrri hvítri innréttingu með viðarborðplötu, flísum á milli skápa og björtum borðkrók við glugga, en nýtt parket var sett á eldhúsið um leið og skipt var um innréttingu. Barnaherbergi við hlið eldhúss er ágætlega rúmgott með glugga að framlóð hússins. Hjónaherbergi er stórt og bjart með glugga að garði og fataskáp á heilum vegg. Baðherbergi við hlið hjónaherbergis er flísalagt, með "walk-in" sturtu. og  innréttingu.
Lóðin, sem er endalóð er mjög gróin með sólpöllum og skjólveggjum bæði í garði og á framlóð. Geymsluhús sem nýtist mjög vel er á framlóðinni, en geymsluhúsið er á steyptum grunni og með rafmagni. Húsið hefur að sögn eiganda fengið gott viðhald og umhirðu. Gólfefni eru nýleg, eldhús nýtt, húsið og gluggar voru málaðir í sumar og borið var á alla palla, skjólveggi og girðingar. Fyrir þremur árum var þak yfirfarið og málað, skipt var um þakrennur og skipt um timbur i þakkanti. Útidyrahurð var endurnýjuð fyrir ca fjórum árum. Ekki er rekið húsfélag í raðhúsalengunni. Skipta þarf um glugga í eldhúsi og er glugginn til.

Virkilega gott sérbýli með góðum garði og góðum sólpöllum á besta stað í Breiðholti. Stutt í alla þjónustu.

Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða asta@kjoreign.is
Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 eða dan@kjoreign.is

img
Dan Valgarð S. Wiium
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Kjöreign fasteignasala
Ármúla 21, 108 Reykjavík
Kjöreign fasteignasala

Kjöreign fasteignasala

Ármúla 21, 108 Reykjavík
phone
img

Dan Valgarð S. Wiium

Ármúla 21, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. okt. 2012
19.600.000 kr.
23.000.000 kr.
85 m²
270.588 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Kjöreign fasteignasala

Kjöreign fasteignasala

Ármúla 21, 108 Reykjavík
phone

Dan Valgarð S. Wiium

Ármúla 21, 108 Reykjavík