Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Aðalstræti 5 nh

600 Akureyri

51.900.000 kr.

440.952 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2144625

Fasteignamat

51.250.000 kr.

Brunabótamat

61.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1948
svg
117,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

EIGNAVER 460-6060

Aðalstræti 5 nh, 600 Akureyri
Björt og snyrtileg þriggja herbergja neðri sérhæð á góðum stað í Innbænum á Akureyri.. Eignin er samtals 117,7 fm

 Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning 

Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi auk sérgeymslu í kjallara og sameiginlegu þvottahúsi.
Aðalinngangur er frá Aðalstrætinu á norðurhlið hússins.  Á austurhlið hússins er bakdyrainngangur þar sem gengið er niður í kjallara hússins. 

Nánari lýsing:
Forstofa flísar á gólfi.
Hol er í miðri íbúðinni, flísar á gólfum og úr holinu er farið inn í öll rými hæðarinnar. Hol var nýtt sem borðstofa
Eldhúsið flísar á gólfi og hvítri sprautulakkaðri og spónlagðri innréttingu. Flísar eru á milli efri og neðri skápa. Handklæðaofn er í rýminu og stæði er fyrir uppþvottavél.
Stofa flísar á gólfi. 
Svefnherbergi eru tvö, bæði með flísum á gólfi og í öðru þeirra er nýlegur hvítur rúmgóður fataskápur og úr hinu útgangur út á sólpall til suðvesturs.
Baðherbergi flísar á gólfi, ljósri innréttingu, sturtuklefa og handklæðaofn á vegg.  Opnanlegur gluggi er á baðherberginu og tengi fyrir þvottavél.
Kjallari er með rúmgóða sérgeymslu, sameiginlegt þvottahús og rúmgott sameiginlegt geymslurými. Útgangur er úr kjallara út í garð. Stigi liggur úr kjallara upp í íbúðina, í hol.

Lóðin er gróin og í óskiptri sameign.  Núverandi eigendur hússins hafa skipt lóðinni þannig með sér að neðri hæð er með steypt bílastæði norðan við húsið og efri hæðin er með malborið bílaplan á suðu-vesturhorni lóðarinnar. Sólpallur er til suðvesturs.

Annað:
- Þak var endurnýjað árið 2014.
- Sér hiti og rafmagn er fyrir íbúðina.
- Íbúðin var öll máluð að innan 2026.
- Tenglar og rofar endurnýjaðir 2026.
- Snjóbræðsla í bílaplani og stigapalli, lokað kerfi.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.

Nánari upplýsingar veita:
Begga            s: 845-0671   /begga@eignaver.is
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is


 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone