Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Vista
svg

123

svg

40  Skoðendur

svg

Skráð  30. júl. 2026

fjölbýlishús

Benijófar Spánn

953 Spánn - Costa Blanca

37.950.000 kr.

622.131 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F9991250

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
61 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.

Lýsing

Benijófar – 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með verönd
Verð: 253.000 €

Fasteignasalan TORG í samstarfi við NovusHabitat kynnir nýja og glæsilega íbúð á eftirsóttum stað í Benijófar á suðurhluta Costa Blanca.
Um er að ræða nútímalega 61 m² íbúð á jarðhæð í nýbyggingu, með tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og rúmgóðri verönd. Íbúðin er vel skipulögð með björtu alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda opið og þægilegt rými með útgengi út á verönd. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi og útgengi út á verönd, sem eykur bæði þægindi og notagildi eignarinnar.

Benijófar er rótgróið og vinsælt svæði sem býður upp á alla helstu þjónustu til daglegra nota, þar á meðal verslanir, veitingastaði, skóla og aðra grunnþjónustu. Í nærliggjandi bæjum á borð við Rojales og Ciudad Quesada er enn frekara þjónustuframboð og fjölbreyttir afþreyingarmöguleikar, svo sem golfvellir, vatnagarður, íþróttasvæði og útivist. Strendurnar við Guardamar eru í um 10 mínútna akstursfjarlægð og Alicante-flugvöllur er í um 30 mínútna fjarlægð um AP-7 hraðbrautina.

Íbúðin er hluti af nýlegri íbúðasamstæðu með sameiginlegri sundlaug og lyftu. Um er að ræða lokað íbúðasvæði sem hentar vel bæði sem orlofseign og til heilsársbúsetu.
Eignin skiptist í 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi
Bjart og opið alrými með stofu og eldhúsi, verönd og sameiginlega sundlaug
Áætluð afhending: september 2026
Eignin snýr í suður

Innifalið í verði: eldhústæki, fullbúin baðherbergi, útilýsing, undirbúningur fyrir loftkælingu
Mögulegt er að kaupa bílastæði og geymslu gegn aukakostnaði.

Þetta er vönduð og vel staðsett eign á vinsælu svæði sem sameinar rólegt íbúðahverfi, góða þjónustu og stuttan akstur í strendur, golf og afþreyingu.

Fasteignasalan TORG og NovusHabitat veita aðstoð við alla þætti kaupferlisins, þar á meðal tengingu við banka, lögfræðinga og þjónustuaðila á Spáni, og tryggja þannig einfalt og öruggt ferli fyrir kaupendur. Athygli er vakin á því að verð í íslenskum krónum er áætlað viðmið miðað við gengi á hverjum tíma. Endanleg viðskipti fara fram í evrum (EUR) og getur gengi haft áhrif á heildarkostnað.

Ferlið er einfalt; þú segir okkur hverju þú leitar að og við aðstoðum þig við að finna rétta eign. Við skipuleggjum skoðunarferðir og tökum að hluta þátt í kostnaði vegna þeirra, verði af kaupum.
Við kaup á nýbyggingum á Spáni leggst almennt 10% IVA (spænskur virðisaukaskattur) ofan á kaupverð. Auk þess má gera ráð fyrir um 3% viðbótarkostnaði vegna stimpilgjalda, lögfræðikostnaðar og annarra gjalda, þannig að heildarkostnaður getur numið um 13% ofan á kaupverð.
Við veitum aðstoð við allt kaupferlið á Spáni sem felur meðal annars í sér útgáfu NIE-númers, opnun bankareiknings og aðkomu lögfræðings. Algengt er að fjármögnun fáist hjá spænskum bönkum að hluta til, oft á bilinu 50–70% af kaupverði, háð mati á greiðslugetu.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, fasteignasali, í síma 863-8813 eða á netfangið elka@fstorg.is.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone