Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Álfkonuhvarf 39

203 Kópavogur

88.900.000 kr.

772.372 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2268731

Fasteignamat

87.500.000 kr.

Brunabótamat

71.130.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2005
svg
115,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og vel skipulögð 115,1 m2, 4ra herbergja, endaíbúð á efstu hæð með glæsilegu útsýni í lyftuhúsi, ásamt bílastæði í lokuðum bílakjallara við Álfkonuhvarf 39 í Kópavogi. Svalir í suðurátt með svalalokun. Eignin er skráð 115,1 m2 , þar af íbúð 104,7 m2 og geymsla 10,4 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er í kjallara. Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir eigninni. 
Vinsæl staðsetning við Ögurhvarf í Kópavogi. Stutt í vinsæl útivistarsvæði, skóla, verslun og alla helstu þjónustu.


Verið er að skipta um glugga þar sem það er þörf á í húsinu á vegum húsfélagsins og greiðir seljandi kostnað vegna þessara framkvæmda.

** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax **

Nánari lýsing: 
Forstofa er með fataskáp og skúffum. Flísar á gólfi.
Gangur er með flísum á gólfi. 
Stofa/borðstofa er björt með parketi á gólfi. Útgengt er á svalir með svalalokun í suðurátt með fallegu útsýni. 
Eldhús er með flísum á gólfi, snyrtilegri innréttingu með stein á borðum og borðkrók. Flísar eru milli efri og neðri skápa. Í innréttingu er bakaraofn, örbylgjuofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir að ísskáp og uppþvottarvél í innréttingu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp. 
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskáp. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu með handlaug og stein á borði, vegghengdu salerni, baðkari, sturtuklefa og handklæðaofni.
Þvottahús er inn af baðherbergi með fataskápum og flísum á gólfi. Gluggi er í þvottahúsi.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara, skráð 10,4 m2. Hillur í geymslu fylgja.
Bílastæði er í lokuðum bílakjallara merkt B16.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara. 

Verð kr. 88.900.000,-
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ