Lýsing
Eignaland kynnir til sölu lóðir úr jörðinni Votmúla við Selfoss. Lóðirnar eru staðsettar rétt utan við Selfoss og eru frá 4,4 – 10,2 he. Heimilt er að byggja allt að 2000 fm á hverri lóð. Heimilt er að byggja íbúðarhúsnæði ásamt bílgeymslu allt að 600fm, auk þess er heimilt að byggja allt að 200fm gestahús og 200fm garðhýsi/gróðurhús. Samtals allt að 1.000,- fm. Einnig er heimilt samkvæmt deiliskipulagi að byggja húsnæði tengt landbúnaði allt að 1.000fm.
Heildarbyggingamagn á hverri lóð er því að hámarki 2.000fm.
Landið er vel gróið og frábært beitiland fyrir skepnur.
Þessar lóðir eru í boði núna og verð:
Múli 1, stærð 10he, verð 38.900.000.-
Múli 2, stærð 6,5he, verð 28.900.000.-
Múli 3, stærð 10,2he, verð 38.900.000.-
Múli 4, stærð 4,7he, verð 23.900.000.-
Múli 6, stærð 5,3he, verð 25.900.000.-
Múli 8, stærð 4,4he, verð 23.900.000.-
Kominn er vegur að öllum lóðum
Kalt vatn kemur frá Selfossveitum.
Rafmagn er tengt við dreifikerfi RARIK.
Ekki er gert ráð fyrir að svæðið tengist hitaveitu á næstu árum, en ekki búið að útiloka þann möguleika í framtíðinni.
Fráveita skal fara í rotþró/siturlögn, í samræmi við reglur og leiðbeiningar sem gild aum slíkar framkvæmdir.
Nánari upplýsingar og skilgreiningar ásamt skýringamyndum er hægt að nálgast hjá sölumanni, en þær upplýsingar liggja fyrir í deiliskipulagi, sem hægt er að fá sent í tölvupósti.
Allar nánari upplýsingar eru hjá fasteignasölum:
Jens Magnús Jakobsson lgf., magnus@eignaland.is, S:893-1984
Sigurður Fannar Guðmundsson lgf., siggifannar@eignaland.is, S:897-5930
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.