Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1958
111,7 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Björt og vel skipulögð 4. herbergja íbúð á 2. hæð í Sigvaldablokkinni í Skaftahlíðinni. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Tveggja mínútna göngufæri að Klambratúni. Búið er að endurnýja glugga og gler að mestu og setja þrefalt gler í stofu.Íbúðin skiptist í forstofu, stofu með útgengi á svalir, borðstofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergisgang, þrjú svefnherbergi og geymslu á jarðhæð. Einungis fjórar íbúðir eru í stigaganginum, ein á hverri hæð.
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp. Parket á gólfi.
Opið er á milli stofu og borðstofu. Parket á gólfi. Rúmgóðar og bjartar stofur. Útgengt á suður svalir.
Eldhús með hvítri innréttingu með góðu vinnu- og skápaplássi, gaseldavél. Parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi með miklu skápaplássi. Parket á gólfi.
Tvö rúmgóð barnaherbergi en annað þeirra er með útgengi á svalir. Parket á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Snyrtileg innrétting. Baðkar með sturtu.
Á jarðhæð er sér geymsla íbúðarinnar og sameiginlegt þvottahús.
Á undanförnum árum hefur verið farið í umfangsmiklar utanhússframkvæmdir, m.a. steypuviðgerðir, gluggaskipti á málun, endurnýjaður þakpappir, endurnýjuð svalagólf.
Frárennslislagnir voru fóðraðar.
Frekari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. sep. 2015
31.400.000 kr.
41.900.000 kr.
111.7 m²
375.112 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026