Opið hús: Suðurbraut 758, 262 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 01 02 02. Eignin verður sýnd sunnudaginn 23. ágúst 2026 milli kl. 14:00 og kl. 15:00.
Lýsing
Í boði eru 3ja herbergja, 2ja herbergja og studíó íbúðir. Þær eru frá 51,5 fm til 94,7 fm að stærð. Verð eru frá kr. 43.000.000 og til kr. 63.000.000. Geymsla í sameign fylgir öllum íbúðum. Næg bílastæði eru við húsið.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum. Áætlaður afhendingartími er í september 2026.
Íbúð 202 er stúdíó íbúð, 51,3 fm að stærð, þar af er geymsla 4,1 fm.
HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI.
Skoða myndband
Byggingarlýsing:
Um er að ræða 2ja hæða hús sem var endurbyggt í heild sinni, þar með talið burðarvirki, klæðningar, gluggar og allir innviðir, samkvæmt kröfum núgildandi byggingareglugerðar. Byggð var ný hæð á hluta byggingarinnar.
Fyrsta hæð byggingarinnar er staðsteypt á steyptum sökkli með burðarvirki úr stáli og steinsteypu. Önnur hæð er á steyptri plötu, burðarvirki er úr timbri, stálsúlum og límtrésbitum. Á neðri hæð eru steyptir burðarveggir einangraðir að utan og klæddir ál- og timburklæðningu. Á efri hæð eru veggir byggðir upp með timburgrind, einangraðir með 150 mm steinull og klæddir með ál- og timburklæðningu í samræmi við heildarútlit hússins. Klæðningin er lituð álklæðning og hitameðhöndluð viðarklæðning (Thermo Wood). Gluggar eru tré/ál með tvöföldu einangrunargleri. Svalir eru staðsteyptar, yfirbyggðar, með útilýsingu og handriði úr öryggisgleri. Þak er einangrað og klætt með tjörudúk.
Veggir eru gifsklæddir, spartlaðir og málaðir. Loft eru niðurtekin og gifsklædd í íbúðum, hljóðísogsdúkar eru á göngum sameignar.
Á gólfum er vínylparket í íbúðum og á göngum sameignar, flísar á baðherbergjum, í votrýmum og anddyri.
Innréttingar eru vandaðar, sprautulakkaðar og slitsterkar í gráum lit. Plastlagðar borðplötur í eldhúsrými. Eldhústæki, þ.e. ofn, helluborð og vifta, eru frá Electrolux.
Á baðherbergjum eru spegla- og handlaugarskápur, vegghengt salerni, sturta með glerskilrúmi og sjálfvirkum blöndunartækjum. Sameiginlegt öryggisniðurfall og niðurfall er í sturtu. Inn á baðherbergi eru tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara.
Innihurðir eru spautulakkaðar hvítar rennihurðir frá Byko. Millihurðir eru hvítar sprautulakkaðar frá Birgisson.
Ofnar eru í íbúðum og sameign efri hæðar, gólfhiti er í íbúðum og sameign neðri hæðar.
Vélræn loftræsting (útsog) er á baðherbergjum og í eldhúsrýmum, og lokuðum rýmum í sameign, opnanleg fög í alrýmum. Ferskloftsventill er í útvegg á íbúðum.
Ljóskúplar eru í öllum íbúðarrýmum, útilýsing og tenglar á svölum og við inngang.
Suðurbraut 758 stendur á íbúða- og þjónustusvæði Ásbrúar í Reykjanesbæ. Svæðið einkennist af góðri aðstöðu fyrir daglegt líf, góðu aðgengi að þjónustu, leikskóla og grunnskóla, nálægð við íþróttamannvirki, göngu- og hjólastíga, í rólegu umhverfi með góðum samgöngum og greiðri aðkomu.
Hverfið hefur á undanförnum árum tekið miklum framförum og telst nú eitt virkasta uppbyggingarsvæði bæjarins.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.