Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
raðhús

Byggðavegur 101f

600 Akureyri

87.900.000 kr.

526.978 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2145135

Fasteignamat

79.450.000 kr.

Brunabótamat

76.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1959
svg
166,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
Opið hús: 10. ágúst 2026 kl. 16:15 til 17:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Byggðavegur 101f - Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 5 herbergja raðhúsaíbúð á vinsælum stað á Brekkunni - stærð 166,8 m²

Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Aðalhæð:
Forstofa, eldhús og stofa og borðstofa í alrými. 
Efri hæð: Hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. 
Kjallari: Þvottahús/inngangur, baðherbergi, svefnherbergi og tvær geymslur. 

Forstofa er með gráum vínyl flísum á gólfi, gólfhita og ofni. Búið er að endurnýja forstofuhurð.
Eldhús var endurnýjað árið 2018. Falleg sérsmíðuð tvílit innrétting frá Öl ehf með flísalagðri bekkplötu og á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. Harðparket er á gólfi. Úr eldhúsi er gengið niður í kjallara, steyptur og lakkaður stigi. 
Stofa og borðstofa eru í alrými þar sem harðparket er á gólfi, gólfhiti, stórir vestur gluggar og nýleg hurð út á timbur verönd. 
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú á efri hæðinni, öll með harðparketi á gólfi og eitt með stórum fataskáp og eitt í kjallaranum með viðarparketi á gólfi. Úr einu af herbergjunum á efri hæðinni er gengið út á steyptar vestur svalir, nýleg svalahurð.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2005. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, spónlögð innrétting (hlynur), upphengt wc, handklæðaofn, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi. Hiti er í gólfi og er honum stýrt í gegnum ofninn.
Annað baðherbergi er í kjallaranum með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu, wc og sturtu.
Stigi upp á efri hæðina og hol eru með harðparketi á gólfi. Opnanlegur þakgluggi er á holinu sem gefur skemmtilegu birtu inn í rými.
Þvottahús nýtist sem annar inngangur fyrir eignina, þar er lakkað gólf og nýleg útidyrahurð og gluggi. 
Tvær rúmgóðar geymslur eru í kjallaranum með lökkuðu gólfi og litlum gluggum. Léttur veggur er á milli þeirra. 

Annað
- Efri hæðin var mjög mikið endurnýjuð árið 2005 og þá var skipulagi hennar breytt. Sett var ný einangrun upp í loftið og ný loftaklæðning.
- Járn á þaki og þakrennur var endurnýjað 2009.
- Búið er að endurnýja hluta af gleri, gluggapóstum og opnanlegum fögum. 
- Búið er að endurnýja rafmagnstöflu og stærstan hluta raflagna.  
- Árið 2018 var lagður gólfhiti í aðalhæðina, ný gólfefni og nýtt eldhús. 
- Svalahurðar og inn í þvottahús voru endurnýjaðar árið 2023.
- Varmaskiptir er á neysluvatni.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Eignin er laus til afhendingar í byrjun október 2026.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone