Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2018
57,7 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð með gólfsíðum gluggum og góðri lofthæð. Íbúðin er merkt 310 og er á þriðju á góðum stað við Hlíðarenda. Íbúðin hefur aðang að bílastæði fyrir framan hús sem er lokað af með hliði og því eingöngu fyrir íbúa hússins.Nánari lýsing :
Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp. Þaðan tekur við opið og bjart alrými þar sem stofa og eldhús mynda samfellda heild. Baðherbergi er staðsett við forstofuna. Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi og góðri lofthæð. Stofan tengist eldhúsi og þaðan er útgengt á svalir. Smekklegt eldhús með góðu vinnuplássi og eyju. Innréttingin býður upp á gott skápapláss og innbyggðan ísskáp, uppþvottavél og bakaraofn. Háfur er yfir eldunarsvæði og parket á gólfi. Steinn á borði. Rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi, parketi á gólfi og gluggum sem veita góða birtu. Flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Góð aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara og rennihurð aðskilur þvottaaðstöðuna frá baðrýminu. Sérgeymsla í sameign, 3,6 m² að stærð, Sameign: Lyfta er í húsinu og myndavéladyrasími í forstofu. Á hverri hæð hússins eru stórar skjólgóðar sameiginlegar svalir. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Nánari upplýsingar veitir
Alfreð Valencia löggiltur fasteignasali í síma: 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. júl. 2018
33.250.000 kr.
38.900.000 kr.
57.4 m²
677.700 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026