Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Hraunbær 103

110 Reykjavík

69.900.000 kr.

1.014.514 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2044295

Fasteignamat

55.700.000 kr.

Brunabótamat

37.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1990
svg
68,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 68,9 m2, 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi við Hraunbæ 103 í Reykjavík. Rúmgóðar svalir með svalalokun og fallegu útsýni.
Húsið er ætlað félagsmönnum í Félagi eldri borgara, 60 ára og eldri. Innangengt er í félagsmiðstöð sem rekin er á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar þar sem boðið er upp á fjölbreytt félagsstarf. Þar er meðal annars mötuneyti, setustofa, hárgreiðslustofa og snyrtistofa. Tvær lyftur eru í húsinu og aðgengi gott.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, þar á meðal matvöruverslanir, apótek og heilsugæslu. Sundlaug og fallegar gönguleiðir í Elliðaárdal eru í næsta nágrenni.

Eignin skiptist í svefnherbergi, baðherbergi, forstofu, geymslu innan íbúðar, eldhús, stofu og borðstofu. Einnig fylgir læstur skápur (geymsluhólf) í sameign á jarðhæð. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent


Nánari lýsing
Forstofa með fataskápum og parketi á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Í eldhúsi er L-laga innrétting með innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofn, helluborð og vifta. Úr stofu er gengið út á svalir með svalalokun og fallegu útsýni.
Svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, skápum, upphengdu salerni, handklæðaofni, og rúmgóðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Geymsla innan íbúðar er með hillum og parket á gólfi.

Húsgjöld eignarinnar eru 28.076 kr. á mánuði og innifalið er meðal annars almennan rekstur húsfélags, hiti, rafmagn í sameign, þrif sameignar, húseigendatrygging, framkvæmdasjóð og þjónustukaup.

Verð kr. 69.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. mar. 2024
51.050.000 kr.
62.000.000 kr.
68.9 m²
899.855 kr.
29. júl. 2021
33.300.000 kr.
44.500.000 kr.
68.9 m²
645.864 kr.
19. okt. 2011
16.000.000 kr.
19.250.000 kr.
68.9 m²
279.390 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ