Lýsing
Falleg fimm herbergja íbúð á efstu hæð í þríbýli með sérinngangi og bílskúr.
- Mjög góð lofthæð í eigninni.
- Mikið endurnýjuð á undanförnum árum.
- Heildarstærð eignarinnar samkvæmt HMS er 162,7 fm, þar af bílskúr 22,3 fm.
- Fjögur svefnherbergi.
- Eldhús nýlega endurnýjað.
- Tvennar svalir.
Nánari upplýsingar veitir Jens Magnús í síma 893-1984 eða á netfanginu magnus@eignaland.is.
Nánari lýsing
Komið er inn í forstofu með fatahengi. Teppalagður stigi liggur upp í íbúðina. Uppi er rúmgott og bjart hol með fallegu útsýni til norðurs. Á gangi við holið er fataskápur með speglarennihurðum.
Hjónaherbergið er með opnum fataskáp og útgengi út á litlar svalir til vesturs. Þrjú barnaherbergi eru í íbúðinni, tvö þeirra á neðri palli og eitt á þeim efri.
Baðherbergið er bjart og snyrtilegt með sturtu, baðkari, innréttingu og flísum á gólfi og veggjum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara eru inni í skáp.
Gengið er upp þrjár tröppur í alrými eignarinnar sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Um er að ræða opið og fallegt rými með aukinni lofthæð.
Eldhúsið hefur nýlega verið endurnýjað, er með fallegri innréttingu ásamt quartz steinn í borðplötu og útgengi út á svalir til suðurs. Þar er spanhelluborð með innbyggðri viftu, tveir ofnar í vinnuhæð auk innbyggðs ísskáps og uppþvottavélar.
Parket er á allri íbúðinni, að baðherbergi undanskildu þar sem flísar eru á gólfi og veggjum.
Teppi er á stiganum upp í íbúðina.
Það sem hefur verið gert við eignina á undanförnum árum
-Múrviðgerðir og málun utanhúss.
-Búið er að endurnýja allt gler.
-Gluggar yfirfarnir og endurnýjaðir eftir þörfum.
-Rafmagn yfirfarið og tafla endurnýjuð.
-Búið er að drena húsið.
-Skipt hefur verið um þakjárn, rennur og niðurföll.
Bílskúrinn er við austurhlið hússins og er með bílskúrshurð nýleg með rafmagnsopnara.
Hér er um að ræða einstaklega sjarmerandi og notalega eign á frábærum stað þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun veitir:
Jens Magnús Jakobsson, löggiltur fasteignasali, S:893-1984 eða magnus@eignaland.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.