Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Sigurðsson
Þorsteinn Magnússon
Vista
sumarhús

Efristígur 11

806 Selfoss

59.900.000 kr.

843.662 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2237540

Fasteignamat

35.200.000 kr.

Brunabótamat

43.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1998
svg
71 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Fallegt og vel viðhaldið sumarhús á fallegri lóð úr landi Kárastaða við Þingvallavatn.
Eignin stendur á 5400m2 leigulóð innan þjóðgarðs og gildir lóðarleigusamningur í 10 ár í senn.
Húsið er timburhús byggt árið 1998, klætt að utan með málaðri timburklæðningu, litað járn er á þaki.
Heildarstærð hússins er skráð 71,0m2 og skiptist það í forstofu, baðherbergi, geymslu, tvö svefnherbergi, stofu og eldhús auk svefnlofts sem er yfir hluta hússins.
Húsið er kynnt með rafmagni auk þess sem loftvarmadæla er í húsinu.
Nánari lýsing:
Forstofa er mjög rúmgóð og eru flísar á gólfi.
Geymsla er innaf forstofu, rúmgóð og þar er gluggi.
Herbergin eru bæði parketlögð.
Baðherbergi er parketlagt og þar er sturta.
Svefnloft er yfir herbergjunum og er parket á gólfi.
Stofan og eldhús eru í opnu og rúmgóðu rými. Eldhúsið er parketlagt og þar er snyrtileg innrétting.
Í stofu er fallegur arinn og eru flísar á gólfi í enda stofunnar. Upptekið loft er í stofu og eldhúsi.
Stór sólpallur sem snýr til suðurs er við húsið og er fallegt útsýni frá pallinum.
Hellulögð stétt er við húsið, lóðin er öll gróin og skjólgóð.
Í heildina er um að ræða gott og fallegt sumarhús á einstöku stað.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
 

Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone
Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone