Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Naustavör ,

200 Kópavogur

249.000.000 kr.

1.170.113 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2360868

Fasteignamat

176.050.000 kr.

Brunabótamat

130.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
212,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Jason Kristinn, sími 7751515 - og Betri Stofan kynna með stolti: stórglæsilega 213,0 fermetra 5 herbergja íbúð á efstu hæð auk 103,2 fermetra þakverandar með heitum potti og virkilega fallegu útsýni á einstökum stað við Naustavör í Kópavogi.  Sér bílastæði með rafhleðslustöð í lokaðri og upphitaðri bílageymslu fylgir eigninni.   

Þaksvalir eru yfirbyggðar að hluta á mjög vandaðan máta og glæsilegt útsýni er frá eigninni yfir smábátahöfnina, út á sjóinn, að Öskjuhlíð og víðar.

Eignin er öll innréttuð á afar vandaðan og smekklegan máta með hvítum- og eikarinnréttingum, vönduðum flísum og parketi, gólfhitakerfi, aukinni lofthæð að hluta og innbyggðri og óbeinni lýsingu í loftum. 

Eignin verður eingöngu sýnd í einkasýningu þeim sem bóka tíma.

Lýsing eignar:
Forstofa: stór, flísalögð og með fataskápum á heilum vegg.
Þvottaherbergi: innaf forstofu um rennihurð, flísalagt gólf og innrétting með vaski.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með gluggum í tvær áttir og útgengi í sólskála með heitum potti og þaðan á stórar þaksvalir með mjög fallegu útsýni. Fataherbergi, parketlagt og með fataskápum. Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, handklæðaofn, innrétting, veggskápar, vegghengt wc, stór flísalögð sturta með sturtugleri og innbyggðum tækjum í vegg og útgengi í sólskála með heitum potti og þaðan á mjög stórar þaksvalir með mjög fallegu útsýni.
Hol: um rennihurð úr forstofu, er stórt og parketlagt. 
Búr: innaf holi, parketlagt og með innréttingu.
Baðherbergi II: flísalagt gólf og veggir, innrétting, speglaskápar með lýsingu, handklæðaofn, vegghengt wc. og flísalögð stór sturta með sturtugleri og innbyggðum tækjum í vegg.
Barnaherbergi I: rúmgott, parketlagt og með innbyggðum fataskápum. Mjög fallegt útsýni er úr herberginu yfir smábátahöfnin.
Barnaherbergi II: stórt, parketlagt og með fataskápum. Mjög fallegt útsýni er úr herberginu yfir smábátahöfnin.
Samliggjandi stofur: mjög stórar og bjartar með aukinni lofthæð með innbyggðri og óbeinni lýsingu, stórum gluggum og útgengi á stórar þaksvalir með mjög fallegu útsýni. Mögulegt er að setja kamínu í stofu.
Eldhús: flísa- og parketlagt með mjög miklum og fallegum hvítum + eikarinnréttingum með gleri á milli skápa og kvartsteini á borði. Innbyggð uppþvottavél, gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp með klakavél og góður tækja- og búrskápur.  Stór eyja með kvartsteini á borðum og köntum, góðum hirslum og spanhelluborði með hangandi háfi yfir. 
Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu með rafhleðslustöð.
Sérgeymsla, sem er 8,3 fermetrar að stærð.
Sameiginleg hjólageymsla.

Húsið að utan er klætt með áli og því viðhaldslítið. Sameign er öll mjög snyrtileg og rafmagnsopnun er á hurðum í sameign hússins.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á mjög fallegum útsýnisstað í eftirsóttu hverfi við Naustavör á Kársnesinu í Kópavogi. 
Lóðir húsanna eru allar mjög stórar og mikill fjöldi bílastæða fylgir hverju húsi.

Frábærar gönguleiðir eru í næsta nágrenni við sjávarsíðuna. Stutt yfir í Sky Logoon og innan örfárra ára kemur brú yfir Fossvoginn sem styttir gönguleiðina til Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 7751515, tölvupóstur jason@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. maí. 2018
40.050.000 kr.
119.000.000 kr.
194.8 m²
610.883 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík