Lýsing
Sögufræg jörð í Skagafirði sem hefur verið eitt þekktasta hrossaræktarbú á Íslandi. Á jörðinni eru einbýlishús á tveimur hæðum, hesthús með reiðhöll og gestahús sem er leigt í skammtímaleigu til ferðamanna.
- Landið er talið vera með afrétti um 860he.
- Veiðiréttur er í Héraðsvötnum.
- Upprekstrar réttur er á tvo afrétti, fyrir ofan bæinn og Öxnadalsheiði.
- Góðar tekjur eru af gistihúsinu til skammtímaleigu.
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Nánari lýsing:
Einbýlishús.
Húsið er tveggja hæða timbur hús sem skráð er skv HMS 168,8fm. Á efri hæðinni er komið inn í rúmgóða forstofu þaðan er gegnið inn í alrími. Á sömu hæð er stofa, borðstofa, eldhús ásamt einu svefnherbergi. Parket er á gólfum efri hæðar.
Á neðri hæðinni eru þrjú svefnherbergi, geymsla og inngangur með anddyri.
Gestahús.
Húsið er á einni hæð og skráð skv. HMS 107,9 fm. Í öðrum endanum er studio íbúð með eldhús aðstöðu og baðherbergi
Í miðri byggingunni er búið að koma fyrir þvottahúsi.
Einnig eru þrjú herbergi með sér baðherbergi þar sem salerni og sturtuklefi er fyrir hendi. Sér pallur er fyrir utan hverja einingu.
Þessi eign er með gólfhita og flísum á gólfi.
Hesthús og reiðhöll.
Hesthúsið er innréttað með 18 stíum í mismunandi stærðum. Góð aðstaða er fyrir starfsfólk, eins og t.d kaffistofa, reiðtígja geymsla og verkfæra geymslur. Hesthúsið er skráð skv. HMS 306,5 fm.
Reiðhöll er sambyggð hesthúsinu. Stærð reiðaðstöðu er c.a. 14x34. Húsið er skráð skv HMS 749,7 fm
Aðrar byggingar sem á jörðinni eru þarf að skoða vel og þurfa viðhald til að vera notaðar.
Frábært tækifæri til að eignast sögufræga jörð í Skagafirði þar sem hrossarækt og hestamennska hefur verið stunduð í tugi ára.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.