Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hraungata 29

210 Garðabær

117.900.000 kr.

904.835 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2520332

Fasteignamat

103.050.000 kr.

Brunabótamat

98.440.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
130,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 17. ágúst 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Hraungata 29, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 02 02 04. Eignin verður sýnd mánudaginn 17. ágúst 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

***DOMUSNOVA KYNNIR * HRAUNGATA 29, GARÐABÆ * GLÆSILEG ENDAÍBÚÐ***
Virkilega falleg nýleg 4ra herbergja endaíbúð á annarri hæð (jarðhæð norðan megin)  merkt 0204 ásamt stæði merktu íbúðinni í lokuðu bílahúsi merkt B02.

- Aukin lofthæð er í íbúðinni 
- Vandað parket og flísar á gólfum íbúðar
- Mjög rúmgóðar svalir til suðurs með vandaðri svalalokun og viðarklæðning á gólfi.  Nýtist vel sem framlenging á stofurými.
- Íbúðinni fylgir stærsta stæðið í bílakjallaranum mjög vel staðsett með tengingu fyrir rafhleðslu 
- Íbúðir eru aðskildar frá sameignargöngum með útigöngum sem gefur eignunum yfirbragð sérinngangs
- Nóg er af stæðum beggja vegna hússins og búið er að setja hleðslustaura á bílaplanið sunnanmegin
- Eignin er sérstaklega vel staðsett innan hverfis, það er stutt í Urriðaholtsskóla og leikskóla hverfisins ásamt Vinagarði.


Fjölbýlishúsið og öll sameign þess er mjög vandað og til fyrirmyndar.
Birt stærð eignarinnar er 130,3fm., þar af geymsla 9,9fm.  


NÁNARI LÝSING:

Anddyri: Flísar á gólfi, vandaður sérsmíðaður fataskápur upp í loft.
Eldhús: Falleg sérsmíðuð innrétting með tanga (eyju), innfelldur ísskápur og uppþvottavél, tveir ofnar (annar combi) og spanhelluborð og gufugleypir.  Fallegur steinn á borðplötum.  Parket á gólfi
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Parket á gólfi.  Útgengt út á skjól- og rúmgóðar svalir með svalalokun frá Ál og gler og viðarklæðningu á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, "walk-in" sturta með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofnSteinn á borðplötu.  Gluggi á baðherbergi
Þvottahús: Flísar á gólfi, vönduð innrétting undir þvottavél og þurrkara, skolvaskur.  Gluggi á þvottahúsi.
Hjónaherbergi: Fataskápur upp í loft. 15,3 fm.  Parket á gólfi
Herbergi: Fataskápur upp í loft. 9,1 fm.  Parket á gólfi
Herbergi: Fataskápur upp í loft. 10,4 fm. Parket á gólfi
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi.  Parket á gólfi.  Útgengt út á skjólgóðar svalir.
Geymsla: í sameign
Sameignargangar mjög vandaðir og snyrtilegir með sjálfvirkum hurðaopnunum, flísum og teppum á gólfum og stigagangi.  Íbúðir eru aðskildar frá sameignargöngum með útigöngum sem gefur eignunum sérinnganga brag.
Bílageymsla snyrtileg og óvenju rúmgott bílastæði fylgir íbúðinni með tengingu fyrir rafhleðslu.

Helstu kostir við frágang:
Við hönnun hússins var tekið mið af því að lágmarka viðhald.  Húsið er einangrað að utan, álklætt að utan og gluggar ál-tré.
Sólveig Andrea Jónsdóttir, innanhúsarkitekt, veitti ráðgjöf við hönnun innréttinga, gólfefna og litaval.
Innréttingar frá Ormsson ehf. og framleiddar af ARENS.
Steinborðplötur eru á eldhúsi og baðherbergjum
Innfelld lýsing í íbúðum.  Snjallkerfi frá Plejd.  Hægt að stýra dimmanlegum ljósum í snjallsíma eða spjaldtölvu.  Myndavéladyrasími er í öllum íbúðum.
Eldhústæki frá Ormsson, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti, combi bakaraofn, spanhelluborð og gufugleypir.
Gólf baðherbergja, þvottahúsa og forstofa eru flísalögð með 60 x 60 flísum frá Birgisson
Parket frá Birgisson,  Ringo innihurðir einnig frá Birgisson
Húsið klætt að utan með vandaðri álklæðningu.  Glerhandið á svölum.
Í stofum eru lofttúður með innbyggðri hljóð- og ryksíu sem tryggja innstreymi og þar með hringrás lofts um íbúðina.

 
Umhverfið: Húsið er staðsett í Urriðaholti í Garðabæ sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins. Urriðaholt byggir á hugsjón um að íbúabyggð eigi að hámarka lífsgæði fólksins sem þar býr í sátt við náttúruna í kring og umhverfið allt. Skipulag Urriðaholts er fyrsta hverfið hér á landi til að hljóta vistvottun samkvæmt vottunarkerfi BREEAM Communities.

Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    Ár
    Fasteignamat
    Kaupverð
    Stærð
    Fermetraverð
    9. jan. 2024
    91.400.000 kr.
    92.900.000 kr.
    130.3 m²
    712.970 kr.
    Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone