Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Sigþór Reynir Björgvinsson
Vista
fjölbýlishús

Skúlagata 40

101 Reykjavík

89.900.000 kr.

768.376 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2003528

Fasteignamat

85.550.000 kr.

Brunabótamat

64.560.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1990
svg
117 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 17. ágúst 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Skúlagata 40, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 10 03 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 17. ágúst 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Snyrtilega bjarta 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi að Skúlagötu fyrir 60 ára og eldri. 
Sér bílastæði í bílageymslu.
Samkomusalur til afnota fyrir íbúa, sauna og heitur pottur er á jarðhæð hússins.
Öll helsta þjónusta er í göngufæri, Vitatorg, verslun, kaffihús, veitingastaðir, Sundhöll Reykjavíkur og Harpan.

Lýsing eignar:
Komið er inn í snyrtilega sameign, mynddyrasímar, tepplagður stigagangur og lyfta er í húsinu.
Forstofa
parketlögð og með fataskáp.
Stofa björt, parketlögð og með gluggum er snúa að nærumhverfi og að hluta til að sjó.
Eldhús parketlagt, innrétting rúmgóð með efri, neðri skápum og skúffum. Pláss er fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Ofn í vinnuhæð, helluborð, háfur og ísskápur fylgir með í kaupum. Flísalagt er á milli efri og neðri skápa.
Rúmgóður borðkrókur er í eldhúsi.
Svefnherbergi
minna, parketlagt og með fataskáp.
Svefnherbergi stærra, parketlagt og með fataskáp. Útgengi er að svölum eignar frá minna svefnherbergi. Svalir, flísalagt gólf og eru með svalalokun.
Hol er á gangi við svefnherbergi og baðherbergi sem væri hægt að nýta td. fyrir skrifstofuaðstöðu eða tómstundarými.
Baðherbergi dúklagt gólf, sturtuklefi, innrétting með efri skápum og neðri skápum og opnum hillum. Spegill í innréttingu með lýsingu fyrir ofan.
Þvottahús/geymsla er við hliðina á baðherbergi. Dúklagt rými, efri hillur og skolvaskur. Tenging er fyrir þvottavél og þurrkara.
Sér bílastæði er í upphituðum bílakjallara stæði merkt 20. Rafmagn er í bílastæði til hleðslu.  Bílaþvottaaðstaða er í bílakjallara.

Möguleiki er að leigja auka geymslu í sameign gegn hóflegu gjaldi.

Sameiginleg hjólageymsla.
Sameiginleg bílastæði húsa nr. 40, 40a og 40b. með aðkomu frá Barónsstíg og frá Skúlagötu. Rafhleðslustöðvar eru á bílaplani. 
Innangengt er á milli húsa.
Sauna
og heitur pottur er í sameign húsa.
Afnot af sameiginlegum veislusal er í sameign húsa gegn vægu gjaldi.
Húsvörður er í húsinu.
Lóð við hús er snyrtileg með tyrfðum flötum og hellulögðum stéttum með hitalögnum undir.

Hús múrviðgert og málað að utan fyrir ca. 10 árum 
Þak, þakrennur og niðurföll endurnýjuð fyrir ca. 4 árum 

Félagsmiðstöðin Vitatorg er í göngufæri þar sem hægt er að fá heita máltíð og taka þátt í ýmsu félagsstarfi. 
Kvöð er á eigninni að kaupendur þurfa að vera félagsmenn í félagi eldri borgara.


Einkar vel staðsett snyrtileg eign í miðbæ Reykjavíkur þar sem öll almenn þjónusta, samgöngur og Laugavegur eru í göngufæri.
Sjón er sögu ríkari.


Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is 
Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501. 


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 3.800,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 


 

img
Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
101 Reykjavík fasteignasala
Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík
101 Reykjavík fasteignasala

101 Reykjavík fasteignasala

Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík
phone
img

Kristín Sigurey Sigurðardóttir

Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. mar. 2012
25.500.000 kr.
24.400.000 kr.
117 m²
208.547 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
101 Reykjavík fasteignasala

101 Reykjavík fasteignasala

Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík
phone

Kristín Sigurey Sigurðardóttir

Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík