Opið hús: Holtsbúð 39, 210 Garðabær. Jason sími 7751515 Eignin verður sýnd sunnudaginn 16. ágúst 2026 milli kl. 18:00 og kl. 18:20.
Lýsing
EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMNING
Eignin skiptist í anddyri, gestasnyrtingu, þrjú svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, eldhús, rúmgóðar stofur, þvottahús ásamt þurrgufu og upphitaðan garðskála. Bílskúrnum hefur verið breytt í sjónvarpsrými, unglingaherbergi sem nýtist sem fjórða svefnherbergið og geymslu.
Gestasnyrtingin er nýlega endurnýjuð. Baðherbergið er með sturtuklefa, upphengdu salerni, fallegri innréttingu, flotuðu gólfi og opnanlegum glugga. Aðalsvefnherbergið er með fataherbergi inn af og tvö önnur svefnherbergi eru í aðalhúsinu.
Eldhúsið hefur verið endurnýjað með vönduðum tækjum og rúmgóðum vaski. Það er opið í báða enda og tengist stórri og opinni stofu. Nýlegt plastparket er á stofu, eldhúsi og svefnherbergjum. Skipt hefur verið um ofna að hluta.
Garðskálinn er upphitaður og með hellulögðu gólfi. Úr bílskúrshlutanum er útgengt í skjólgóðan bakgarð með timburverönd og heitum potti. Fallegt útsýni er frá svefnherbergjunum og bakgarðinum.
Garðurinn er stór og vel við haldinn. Tveir pallar eru við húsið, stærri pallur fyrir framan og minni pallur fyrir aftan. Falleg timburgirðing er umhverfis lóðina.
Innkeyrslan er mjög rúmgóð og hellulögð, með snjóbræðslu að hluta, sett hefur verið upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Húsinu hefur verið vel við haldið og það töluvert endurnýjað að innan. Einnig eru möguleikar á frekari stækkun hússins
Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 775-1515, tölvupóstur jason@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.