Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1989
svg
168,4 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 19. ágúst 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Kársnesbraut 21b Kópavogi. Gott steypt raðhús 168,4 fm með bílskúr á vinsælum stað á Kársnesi.
Húsið er fjögurra herbergja á tveimur hæðum. Hellulögð innkeyrsla og fallegur skjólsæll suðurgarður. Viðhald hússins hefur verið gott.

Nánari lýsing:

Aðal hæð, 79,2 fm: Flísalögð opin forstofa með fataskáp. Flísalagt forstofusalerni með upphengdu salerni og opnanlegu fagi. Hol, eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými, upptekin loft í stofu. Flísar á gólfi. Snyrtileg sérsmíðuð eldhúsinnrétting, granít borðplata, rúmgóður borðkrókur. Hurð úr stofu á verönd. Úr holi er gengið inn í þvottahúsgeymsla þar inn af og bílskúr sem er 22,8 fm.
Stigi úr holi upp á efri hæð

Efri hæð, 66,4 fm. Flísalagður gangur, þrjú góð svefnherbergi með rúmgóðum fataskápum. Upptekin loft í öllum rýmum. Parket á gólfum herbergja. Svalir til norðurs út frá hjónaherbergi, útsýni yfir Fossvog og Öskjuhlíð.  Baðherbergi flísalagt, innrétting, handklæðaofn, opnanlegt fag og baðkar með sturtuaðstöðu.

Mjög snyrtilegt fjölskylduhús. Þak, gluggar, veggir, og tréverk utanhúss og í garði nýmálað (þak málað fyrir nokkrum vikum). Töluvert nýmálað að innan. Nýleg sólargluggatjöld, nýir rofar og dimmerar fyrir ledperur og ýmislegt annað endurnýjað. 

Innkeyrsla er hellulögð og með snjóbræðslulögnum. Fallegur gróður í beðum. Suðurgarður er aflokaður, einstaklega skjólgóður og hlýr, og er á tveimur stöllum. Í neðri hlutanum er stimpilsteypt stétt og í efri hlutanum m.a. ræktunarkassar, nýtt gróðurhús og gróðurbeð með berjarunnum. Lagnir fyrir vatn og rafmagn komnar inn í gróðurhúsið, en vatn ekki enn tengt. Allt mjög hlýlegt og fallegt. Lítill verkfærageymsla á verönd.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is
Bókið skoðun hjá fasteignasala.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

img
Snorri Sigurfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
HÚS fasteignasala
Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
img

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. okt. 2019
61.650.000 kr.
69.900.000 kr.
168.4 m²
415.083 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum