Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Vista
fjölbýlishús

Eskivellir 1

221 Hafnarfjörður

97.800.000 kr.

745.427 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2280275

Fasteignamat

96.700.000 kr.

Brunabótamat

86.090.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2006
svg
131,2 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 20. ágúst 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Eskivellir 1, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 06 04. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 20. ágúst 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Falleg og rúmgóð 4ra herbergja íbúð með tveimur stæðum í bílageymslu og stórum suðvestursvölum
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna fallega og bjarta 131,2 fm íbúð á 6. hæð með lyftu við Eskivelli 1 í Hafnarfirði. Íbúðin er með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og henni fylgja tvö stæði í lokaðri bílageymslu.
Stórar, 18,9 fm svalir snúa í suðvestur með fallegu útsýni til fjalla og sjávar. Gengið er inn í íbúðina af svalagangi en inngangur að þessari íbúð er sá eini á þeim hluta gangsins. Þar skapast skjólgott og notalegt rými við innganginn þar sem njóta má morgunsólar.

-  Tvö stæði í lokaðri bílageymslu
-  Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi
-  Stórar 18,9 fm suðvestursvalir með útsýni til fjalla og sjávar


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is.

Íbúðin er skráð 131,2 fm samkvæmt HMS, þar af er íbúðin sjálf 122,9 fm og sérgeymsla 8,3 fm. Innan íbúðar er jafnframt um 3,9 fm geymsla.
Húsið er 29 íbúða fjölbýlishús með lyftu. 

Nánari lýsing
Gengið er inn í íbúðina af svalagangi en inngangur að þessari íbúð er sá eini á þeim hluta gangsins. Þar skapast skjólgott og notalegt rými við innganginn þar sem njóta má morgunsólar.
Forstofa er flísalögð með fataskáp. Inn af forstofu er um 3,9 fm flísalögð geymsla.
Eldhús er rúmgott með fallegri viðarinnréttingu, steini á borðum og góðu skápaplássi. Tengi er fyrir uppþvottavél og gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Flísar eru á gólfi.
Stofa og borðstofa mynda stórt og bjart alrými með stórum gluggum og fallegu útsýni. Úr stofu er gengið út á stórar suðvestursvalir.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi I er með baðkari, innréttingu og handlaug.
Baðherbergi II er með sturtu, innréttingu og handlaug. Inn af því er sér þvottahús með innréttingu og flísum á gólfi.
Svalir eru 18,9 fm og snúa í suðvestur. Þaðan er fallegt útsýni til fjalla og sjávar. 
Sérgeymsla, 8,3 fm, fylgir íbúðinni auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu.
Bílageymsla: Tvö stæði í lokaðri bílageymslu fylgja eigninni.
Gólfefni: Flísar eru í forstofu, geymslu innan íbúðar, eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergjum. Parket er á öðrum rýmum.
Staðsetning
Eignin er vel staðsett í grónu og barnvænu hverfi. Skóli og leikskóli eru í göngufæri auk þess sem stutt er í matvöruverslun og aðra þjónustu.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800 fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone