Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Freyja Sigurðardóttir
Ágústa Hauksdóttir
Andrea Guðrún Gunnlaugsdóttir
Glódís Helgadóttir
Hlynur Halldórsson
Vista
einbýlishús

Virkisás 22

221 Hafnarfjörður

189.000.000 kr.

598.291 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2523426

Fasteignamat

128.350.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
315,9 m²
svg
9 herb.
svg
3 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum með rúmgóðri aukaíbúð við Virkisás 22 í Áslandi 4, Hafnarfirði. Húsið er skráð 315,9 fm að stærð samkvæmt Þjóðskrá, þar af er bílskúrinn  35,1 fm, innb. Frábær staðsetning í nýju hverfi þar sem eru einungis lágreistar byggingar. (sérbýli) Eignin er til sýnis samdægurs!

Samkvæmt eiganda hússins skilast það á byggingarstigi 3, einangrað og klætt að utan með fallegri klæðningu frá Áltak og steyptir veggir að utan (bollaslípaðir). Lóðin skilast grófjöfnuð, dregið verður í rafmagn fyrir útiljós, klæðning undir anddyri er frá Byko og gluggar frá Radioned frá Húsasmiðjunni. Skilast með uppsettri rafmagnstöflu, dregið hefur verið í mestallt rafmagn (þó ekki fullfrágengið), veggir og loft innanhúss hafa verið bollaslípuð, þrír uppsettir klósettkassar af fjórum en fjórði fylgir með og frárennsli tengt, gólfhiti er tengdur að frátalinni aukaíbúðinni. 


Skipting eignar (sjá nánar á teikningum):
Efri hæð: Rúmgóð forstofa, gestasalerni, stórt bjart alrými sem samanstendur af borðstofu, stofu og eldhúsi, hjónasvítu með fata- og baðherbergi.
Innangengt er inn í bílskúrinn úr forstofunni. Hann er bjartur með stórum glugga. Fallegur setgluggi í alrýminu, útgengt úr eldhúsinu út á verönd. Köld útigeymsla undir stiganum.
Neðri hæð: Komið er niður stiga inn á gang, fjögur rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt er úr neðri hæðinni út á rúmgóða verönd, þar er teiknaður heitur og kaldur pottur.
Aukaíbúð: Forstofa, stofa, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og þvottaaðstaða. Aukaíbúðin er alveg sér (nokkuð prívat).
Um er að ræða nýtt glæsilegt hús á þessum fallega stað þar sem stutt er í falleg útivistarsvæði og alla helstu þjónustu. Eign sem býður upp á mikla möguleika og vert er að skoða frekar!

Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is 
og Einar Örn Ágústsson - löggiltur fasteignasali s. 888-7979 einar@hraunhamar.is  


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

img
Glódís Helgadóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Hraunhamar fasteignasala
Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
img

Glódís Helgadóttir

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður

Glódís Helgadóttir

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður