Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr við Heiðarlund 4 í Garðabæ. Búið er að búa til auka íbúð í eigninni. Stór lóð, 1.212 m2. Steypt bílaplan. Gróðurhús og timburverönd í bakgarði. Eignin er skráð 191 m2 samkvæmt fasteignayfirliti HMS. Árið 1987 var byggt um 40 m² við húsið, en sú viðbygging er ekki skráð í fasteignaskrá né fasteignamati. Heildarflatarmál eignarinnar, að viðbyggingunni meðtalinni, er því áætlað um 231 m².
Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi (fjögur á teikningu), Baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, forstofu, sjónvarpshol, eldhús með borðkrók, stofu, borðstofu og bílskúr. Auka íbúðin skiptist í: Svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og forstofu.
Samkvæmt seljanda var járn og þakpappi á þaki endurnýjaður fyrir um 10 árum. Jafnframt var skipt um borðklæðningu eftir þörfum og þakkantur lagfærður eftir þörfum.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með fatahengi og flísum á gólfi.
Gestasnyrting er inn af forstofu með handlaug og salerni, flísar á gólfi.
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu og björtu rými með parketi á gólfi. Úr borðstofu er útgengt út í bakgarð.
Eldhús er með eldhúsinnréttingu og borðkrók, korkflísar á gólfi.
Þvottahús er með innréttingu og máluðu gólfi. Úr þvottahúsi er útgengt út í bakgarð.
Gangur er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt, með innréttingu með handlaug, salerni, 'walk-in' sturtu og handklæðaofni. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi. Er tvö herbergi á teikningu.
Svefnherbergi 3 er inn af forstofu með dúk á gólfi.
Bílskúr er rúmgóður með tveimur innkeyrsluhurðum, skráður 49 m2.
Auka íbúð:
Forstofa, stofa og eldhús eru í sama rými með parketi á gólfi, eldhúsinnréttingu með ofni og helluborði með tveimur hellum. Gert er ráð fyrir lítilli uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Tengi fyrir þvottavél er í rýminu.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum skápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, innréttingu með handlaug, salerni, sturtuklefa og handklæðaofni. Opnanlegur gluggi og gott hillupláss.
Verð 197.000.000 kr.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.