Lýsing
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 105 fm 3ja herbergja íbúð með bílastæði í lokaðri bílageymslu og þvottahúsi innan íbúðar. Eignin er á 3ju og efstu hæð, og er með svalalokun. Lyfta er í húsinu.
Nánari lýsing:
Komið er inn í flísalagða forstofu. Úr forstofu er gengið inn í opið rými með tvennum stofum; borðstofu og setustofu, og opnu eldhúsi með eyju. Parket er á gólfum. Inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús/geymsla. Öll tæki eru í vinnuhæð, bæði í þvottahúsi og eldhúsi.
Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í eigninni og gott baðherbergi með glugga, baðkari og sturtu.
Í kjallara er rúmgóð geymsla (7,9 fm), sér merkt stæði í lokaðri bílageymslu og hjóla- og vagnageymsla.
Eignin er mjög vel staðsett innan hverfisins en stutt er í fallegar gönguleiðir og alla helstu þjónustu, s.s. matvöruverslanir, skóla og leikskóla. Þá er íþróttamiðstöðina Kórinn steinsnar frá.
Húsið er að mestu klætt að utan og er sameign mjög snyrtileg. Á lóðinni eru leiktæki.
Bílastæði eru malbikuð og göngustígar hellulagðir. Garðurinn er tyrfður. Gott aðgengi er að bílageymslu.
Húsgjöld íbúðarinnar er kr. 35.991 kr.og innifalið í honum er almennur rekstur húsfélagsins, allur hitakostnaður, rafmagn í sameign, húseigendatrygging, þrif sameignar og sorpgeymslu.
Þetta er virkilega falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á góðum stað í Kópavogi. Stutt er í skóla og leikskóla. Öll þjónusta í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.